I. KAFLI Gjald fyrir afnot matsfjárhæða og matskerfa og skráningu nýrra fasteigna. 1. gr. Gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta. Sveitarfélög skulu greiða gjald fyrir afnot af fasteignamati og kerfi til álagningar fasteignaskatta og fasteignagjalda; skal gjaldið nema 0,0060% af heildarfasteignamati í viðkomandi sveitarfélagi 31. desember ár hvert. Gjaldið skal innheimt árlega í janúarmánuði. 2. gr. Gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi. Vátryggingafélög skulu greiða gjald fyrir afnot af brunabótamati og kerfi því viðkomandi; skal gjaldið nema 0,00021% af brunabótamati allra húseigna sem eru tryggðar hjá viðkomandi vátryggingafélagi í lok hvers mánaðar. Gjaldið skal innheimt mánaðarlega. 3. gr. Gjald fyrir skráningu fasteignar. Gjald fyrir skráningu nýrrar fasteignar í fasteignaskrá | kr. | 18.000 |
II. KAFLI Fasteignahluti fasteignaskrár. 4. gr. Einingaverð úr fasteignahluta fasteignaskrár. Sérstakt einingaverð skal vera fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignahluta fasteignaskrár. Þessi svæði eru: | | a) | mannvirkja- og lóðasvæði, | | | b) | matssvæði, | | | c) | eigendasvæði, | | | d) | önnur svæði. |
Einingaverð reiknast í samræmi við fjölda svæða sem upplýsingar um hverja fasteign eru sóttar úr og við fjölda fasteigna á eftirfarandi hátt miðað við notkun á einu almanaksári: Fjöldi fasteigna | Eitt svæði, kr. | Tvö svæði, kr. | Þrjú svæði, kr. | Fjögur svæði, kr. | 1-70.000 | 20 | 40 | 60 | 80 | 70.001-140.000 | 17 | 34 | 51 | 68 | Fleiri en 140.000 | 14 | 28 | 42 | 56 |
5. gr. Aðgangur að uppflettikerfi á heimasíðu Fasteignaskrár Íslands (vefuppfletti). Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá skal vera skv. 4. gr. Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 1.000 | Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) | kr. | 30 | Eigendasaga fasteignar | kr. | 30 | Breytingasaga fasteignar | kr. | 30 |
6. gr. Aðgangur að upplýsingum sem fengnar eru með skeytasendingum með vefþjónustu. Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá skal vera skv. 4. gr. Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 | Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 1.000 | Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
7. gr. Úrtak úr fasteignahluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili (gagnaveitur). Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar skal vera skv. 4. gr. Stofngjald gagnaveitu | kr. | 150.000 |
Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 4. gr. og skal vera eftirfarandi: Tíðni afhendinga | Álag | Mánaðarlega | 3% | Vikulega | 6% | Daglega | 33% |
Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur. III. KAFLI Þinglýsingahluti fasteignaskrár. 8. gr. Einingaverð úr þinglýsingahluta fasteignaskrár. Vélrænar fyrirspurnir úr þinglýsingahluta fasteignaskrár | kr. | 630 | Staðfesting á tilteknum upplýsingum um eina fasteign | kr. | 75 |
9. gr. Miðlun upplýsinga með vefuppfletti á heimasíðu Fasteignaskrár Íslands. Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá skal vera skv. 8. gr. Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 1.000 | Yfirlitsmynd (yfirlit heitis) | kr. | 30 | Eigendasaga fasteignar | kr. | 30 | Breytingasaga fasteignar | kr. | 30 |
10. gr. Miðlun upplýsinga með skeytasendingum með vefþjónustu. Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá skal vera skv. 8. gr. Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 | Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 1.000 | Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
11. gr. Úrtak úr þinglýsingahluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili (gagnaveitur). Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 8. gr. Stofngjald gagnaveitu | kr. | 150.000 |
Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 8. gr. og skal vera eftirfarandi: Tíðni afhendinga | Álag | Mánaðarlega | 3% | Vikulega | 6% | Daglega | 33% |
Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur. VI. KAFLI Kaupskrárhluti fasteignaskrár. 12. gr. Einingaverð úr kaupskrárhluta fasteignaskrár. Einingaverð úr kaupskrárhluta fasteignaskrár er reiknað í samræmi við fjölda fasteigna sem upplýsingar eru fengnar um og skal vera eftirfarandi: Einingaverð úr kaupskrárhluta | kr. | 550 |
13. gr. Aðgangur að upplýsingum sem fengnar eru með skeytasendingum með vefþjónustu. Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar í fasteignaskrá skal vera skv. 12. gr. Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 | Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 1.000 | Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
14. gr. Úrtak úr kaupskrárhluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili (gagnaveitur). Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 12. gr. Stofngjald gagnaveitu | kr. | 150.000 |
Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 12. gr. og skal vera eftirfarandi: Tíðni afhendinga | Álag | Mánaðarlega | 10% | Vikulega | 40% | Daglega | 60% |
Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur. V. KAFLI Staðfangahluti fasteignaskrár. 15. gr. Einingaverð úr staðfangahluta fasteignaskrár. Einingaverð úr staðfangahluta fasteignaskrár er reiknað í samræmi við fjölda hnita sem upplýsingar eru fengnar um og skal vera eftirfarandi: Fjöldi hnita | Einingaverð kr. | Af fyrstu 5.000 | 8 | Af næstu 10.000 | 4 | Af næstu 20.000 | 2 | Af næstu 40.000 og umfram það | 1 |
Afhendingargjald gagna | kr. | 18.000 | Gjald fyrir áritun á geisladisk | kr. | 1.000 |
16. gr. Aðgangur að upplýsingum sem fengnar eru með skeytasendingum með vefþjónustu. Einingaverð fyrir upplýsingar um hverja fasteign skal vera skv. 15. gr Stofngjald vefþjónustu | kr. | 50.000 | Mánaðarlegt þjónustugjald | kr. | 1.000 | Gjald fyrir breytingar vegna rafrænna skilríkja | kr. | 4.500 |
17. gr. Úrtak úr staðfangahluta fasteignaskrár sem sent er með reglubundnu millibili (gagnaveitur). Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði fasteignar skal vera skv. 15. gr. Stofngjald gagnaveitu | kr. | 150.000 |
Uppfærslugjald leggst á einingaverð skv. 15. gr. og skal vera eftirfarandi: Tíðni afhendinga | Álag | Mánaðarlega | 10% | Vikulega | 40% | Daglega | 60% |
Gera skal skriflegan samning og leggja saman einingaverð og uppfærslugjald í heildargreiðslu fyrir eitt ár. Þeirri upphæð má deila í mánaðarlegar greiðslur. VI. KAFLI Ýmis ákvæði. 18. gr. Sérvinnslur. Eignastöðuvottorð: | | Fyrir hverja kennitölu | kr. | 1.000 | | | Viðbótargjald fyrir hverja færslu | kr. | 45 |
Eignasöguvottorð: | | Fyrir hverja kennitölu | kr. | 2.000 | | | Viðbótargjald fyrir hverja færslu | kr. | 45 |
Samanburðarvinnslur: | | Stofngjald fyrir staðfestingar á upplýsingum um tiltekna fasteign | kr. | 50.000 | | | Gjald fyrir hverja samanburðarfærslu úr hverju svæði | kr. | 10 |
Ef óskað er eftir viðbótarupplýsingum er einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá skv. II.-V. kafla. Aðrar sérvinnslur: Einingaverð fyrir upplýsingar úr hverju svæði í fasteignaskrá er skv. II.-V. kafla. | | Byrjunargjald þar með innifalið 2 klst. vinna sérfræðings | kr. | 28.000 | | | Límmiðagjald pr. stk | kr. | 10 |
Sé óskað eftir endurteknum sérvinnslum þarf að gera um það skriflegan samning þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga á tímabilinu sem hér segir en greitt er fyrir hverja afhendingu: Fjöldi afhendinga | Afsláttur af reiknuðu gjaldi afhendingar | 1. afhending á ári | 100% gjald fyrir 1. afhendingu | 2.-4. afhending á ári | 25% afsláttur af gjaldi fyrir 2.-4. afhendingu | 5.-26. afhending á ári | 50% afsláttur af gjaldi fyrir 5.-26. afhendingu | 27. afhending og fleiri á ári | 75% afsláttur af gjaldi fyrir 27. og síðari afhendingar |
19. gr. Tímavinna. Sérfræðingur pr. klst | kr. | 9.500 |
20. gr. Vottorð og ljósrit. Vottorð úr fasteignaskrá | kr. | 500 | Vottorð úr fasteignaskrá á ensku eða dönsku | kr. | 1.500 | Vottorð sérsamið skv. beiðni | kr. | 1.500 | Ljósrit úr fasteignaskrá | kr. | 500 | Ljósrit | kr. | 10 |
21. gr. Endursöluaðilar á upplýsingum úr fasteignaskrá. Endursöluaðilar eru þeir aðilar sem hafa milligöngu um sölu upplýsinga til endanotenda í áskrift. Stofngjald til að gerast endursöluaðili er kr. 250.000. Af þeirri fjárhæð ganga kr. 200.000 upp í not endursöluaðila. Gera þarf samning við Fasteignaskrá Íslands um endursölu upplýsinga. 22. gr. Heimild til samningagerðar. Fasteignaskrá Íslands er heimilt að gera sérstaka samninga um upplýsingamiðlun, sem víkja frá gjaldskrá þessari, við skráningaraðila í fasteignaskrá. 23. gr. Undanþágur frá gjaldskrá. Fasteignaskrá Íslands er heimilt að veita eftirtöldum aðilum afslátt eða undanþágur frá gjaldtöku: Námsmönnum sem upplýsingar þurfa vegna verkefna í þágu náms. Opinberum aðilum sem halda skrár á landsvísu og upplýsingar eða vinnsla er hluti af gagnkvæmum upplýsingasamskiptum. Fjölmiðlum ef upplýsingar varða heildarfjölda eigna eða summutölur úr fasteignaskrá.
24. gr. Lagaheimild og gildistaka. Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 24. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu og mat fasteigna, með síðari breytingum, og öðlast gildi 1. janúar 2009. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 17/2001 um sama efni. Fjármálaráðuneytinu, 10. desember 2008. F. h. r. Baldur Guðlaugsson. Hafsteinn S. Hafsteinsson
|