Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 666/2012

Nr. 666/2012 10. júlí 2012

REGLUR
um fjárhagsaðstoð hjá Húnaþingi vestra.

I. KAFLI
Almenn ákvæði.

1. gr.

Framfærsluskylda.

Hverjum manni er skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Fólk sem er í skráðri sambúð í Þjóðskrá á sama rétt til fjárhagsaðstoðar og hjón. Sambúðin skal hafa verið í Þjóðskrá a.m.k. eitt ár áður en umsókn er lögð fram, sbr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum.

Þeim sem nýtur aðstoðar samkvæmt reglum þessum ber að taka hverri þeirri atvinnu sem býðst nema veikindi, örorka, aldur eða aðrar gildar vottfestar ástæður hamli því.

2. gr.

Inntak fjárhagsaðstoðar.

Fjárhagsaðstoð skal veita í eftirtöldum tilvikum eftir því sem nánar er kveðið á um í reglum þessum:

1. Til einstaklinga og fjölskyldna sem hafa ónógar tekjur sér til framfærslu og geta ekki séð fyrir sér og sínum, sbr. IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum, og III. kafla reglna þessara.

2. Þar sem önnur löggjöf mælir fyrir um aðgerðir sem hafa í för með sér fjárútgjöld, t.d. ákvæði laga um vernd barna og ungmenna.

3. Gefa sérstakan gaum að fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum barnafjölskyldna og meta sérstaklega þarfir barna vegna þátttöku þeirra í þroskavænlegu félagsstarfi, í samræmi við 30. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum.

4. Sem lið í endurhæfingu og stuðningi til sjálfsbjargar enda ekki í verkahring annarra að veita hana.

Jafnan skal kanna til þrautar rétt umsækjanda til annarra greiðslna, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga, einnig skal kanna rétt til aðstoðar samkvæmt lögum um námsstyrki.

Fjárhagsaðstoð skal veitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði félagsmálaráðs, svo sem ráðgjöf og leiðbeiningar í samræmi við V. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum.

3. gr.

Lækkun grunnfjárhæðar.

Hafi umsækjandi hafnað atvinnu eða sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa er félagsmálaráði heimilt að greiða honum allt að hálfri grunnupphæð til framfærslu sem tilgreind er í III. kafla reglna þessara þann mánuð sem hann hafnar vinnu eða segir upp vinnu, svo og mánuðinn þar á eftir.

Sama á við um atvinnulausan umsækjanda sem ekki sýnir fram á staðfesta skráningu sína hjá Vinnumálastofnun. Einnig skerðist réttur umsækjanda með sama hætti sem hætt hefur þátttöku í átaksverkefni, endurhæfingu og einstaklingsmiðaðri áætlun hjá ráðgjafa, nema veigamiklar ástæður sem fram koma við mat á aðstæðum umsækjanda mæli gegn því.

4. gr.

Réttur fylgir lögheimili.

Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram í lögheimilissveitarfélagi. Lögheimili manns er sá staður þar sem hann hefur fasta búsetu. Maður telst hafa fasta búsetu á þeim stað þar sem hann hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra hliðstæðra atvika, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um lögheimili nr. 21/1990.

Þurfi fólk á skyndilegri aðstoð að halda í dvalarsveitarfélagi er skylt að veita tímabundna aðstoð. Skal um það haft samráð við lögheimilissveitarfélag og aðstoð metin í samræmi við reglur þess. Lögheimilissveitarfélag endurgreiðir dvalarsveitarfélagi kostnaðinn, sbr. 14. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum.

5. gr.

Form fjárhagsaðstoðar.

Fjárhagsaðstoð skal jafnan veitt sem styrkur. Fjárhagsaðstoð er einungis veitt sem lán óski umsækjandi þess eða könnun á aðstæðum leiðir í ljós að eðlilegt sé að gera kröfur um endurgreiðslur með tilliti til eigna og framtíðartekna.

Skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð í formi láns er að umsækjandi notfæri sér greiðsluþjónustu banka eða sparisjóða, enda liggi fyrir mat á endurgreiðslugetu umsækjanda.

Á meðan umsókn einstaklings er í vinnslu hjá Vinnumálastofnun á viðkomandi ekki rétt á fjárhagsaðstoð þar sem hann hlýtur atvinnuleysisbætur frá dagsetningu umsóknar. Einstaklingar sem bíða eftir endurmati á endurhæfingarlífeyri eða örorkumati frá Tryggingastofnun ríkisins geta sótt um fjárhagsaðstoð í formi láns sem endurgreiðist að fenginni afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins í formi eingreiðslu.

Ef veita á fjárhagsaðstoð sem lán og fyrir liggur að umsækjandi er þegar með eldra lán hjá félagsþjónustunni skal gera eldra lánið upp eða sameina það nýrri lánveitingu áður en nýtt lán er veitt.

Lán kemur því aðeins til útborgunar að gengið hafi verið frá tryggingu í samræmi við samþykktir, þ.e. með skuldabréfi, veðskuldabréfi eða öðrum tryggilegum hætti.

Komi í ljós að lántakandi er ekki fær um að endurgreiða lán, eins og tilgreint er í greiðsluskilmálum, getur félagsmálaráð breytt greiðsluskilmálum eða breytt láni í styrk.

Lán eru vaxtalaus.

6. gr.

Tímabil samþykkis hverju sinni.

Fjárhagsaðstoð skal að öðru jöfnu vera greidd einn mánuð í senn og skulu ákvarðanir um aðstoð að jafnaði ekki ná yfir lengra tímabil en þrjá mánuði. Að þeim tíma liðnum skal mál umsækjanda skoðað sérstaklega með tilliti til þarfa hans fyrir frekari fjárhagsaðstoð, ráðgjöf og endurhæfingu.

Í undantekningartilvikum er heimilt að veita fjárhagsaðstoð vikulega vegna sérstakra aðstæðna.

7. gr.

Fjárhagsaðstoð aftur í tímann.

Fjárhagsaðstoð er aldrei skylt að veita lengra aftur í tímann en fjóra mánuði frá því að umsókn er lögð fram sbr. 3. mgr. 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum. Rökstuddar ástæður verða að réttlæta slíka aðstoð og verður skilyrðum fjárhagsaðstoðar að vera fullnægt allt það tímabil sem sótt er um.

Börn 18 ára og yngri eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð í eigin nafni.

II. KAFLI
Umsókn um fjárhagsaðstoð og afgreiðsla mála.

8. gr.

Umsókn og fylgigögn.

Umsókn um fjárhagsaðstoð skal leggja fram hjá fræðslu- og velferðarsviði Húnaþings vestra.

Í neyðartilfellum er heimilt að leggja umsókn fram í dvalarsveitarfélagi sbr. 4. gr. reglna þessara.

Umsækjanda er skylt að skila inn eftirtöldum gögnum og verður umsókn ekki afgreidd nema þau liggi fyrir:

1. Umsókn á þar til gerðu eyðublaði, undirritaðri af umsækjanda eða umboðsmanni hans. Þar skulu koma fram upplýsingar um m.a. persónulegar aðstæður og erindi umsækjanda, fjölskyldustærð, lögheimili og atvinnu umsækjanda.

2. Yfirlit yfir tekjur og gjöld umsækjanda. Við gerð þess skal liggja fyrir staðfesting tekna síðustu þriggja mánaða, s.s. afrit launaseðla, bótaseðla frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðsluseðla lífeyrissjóða, sjúkrasjóða stéttarfélaga og atvinnuleysisbóta. Helstu útgjöld, eignir og skuldir.

3. Staðfest afrit af síðasta skattframtali.

4. Stundi umsækjandi sjálfstæðan atvinnurekstur skal vera fyrir hendi, auk skattframtals umsækjanda, rekstrar- og efnahagsreikningur uppfærður til næstu mánaðamóta fyrir umsóknardag og upplýsingar um reiknað endurgjald yfirstandandi árs. Stundi umsækjandi búrekstur skal einnig liggja fyrir greiðslumark búsins, breytingar á bústofni, yfirlit yfir eignir og skuldir aðrar en þær er tengjast viðkomandi rekstri, auk tekna utan bús síðustu þrjá mánuði.

5. Sé umsækjandi atvinnulaus skal hann framvísa staðfestingu frá Vinnumálastofnun er staðfesti atvinnuleysi umsækjanda. Hafi umsækjandi ekki skráð sig hjá vinnumiðlun, án viðhlítandi skýringa, missir hann hlutfallslega rétt til fjárhagsaðstoðar það tímabil. Hafi umsækjandi ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna veikinda skal hann framvísa læknisvottorði.

9. gr.

Upplýsingar um tekjur og fjárhag umsækjanda.

Fræðslu- og velferðarsvið Húnaþings vestra getur, ef þörf krefur, aflað frekari upplýsinga um tekjur og eignir umsækjanda, m.a. hjá skattyfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóðum og Atvinnuleysistryggingasjóði. Skal það gert í samráði við umsækjanda. Neiti umsækjandi að veita upplýsingar um fjárhag sinn eða maka stöðvast afgreiðsla umsóknar hans.

Skylt er að veita félagsmálaráði eða starfsmönnum þess upplýsingar úr skattframtölum þeirra sem leita fjárhagsaðstoðar. Sama gildir um upplýsingar úr skattframtölum lögskylds framfæranda, enda hafi umsækjandi veitt félagsmálaráði og/eða starfsmönnum umboð til að afla þessara upplýsinga, sbr. 24. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum.

Í neyðartilfellum er heimilt að afgreiða skyndiaðstoð til umsækjanda án þess að fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir um fjárhagsstöðu. Skyndiaðstoð er í meginatriðum ætluð til þess að tryggja börnum og unglingum innan fjölskyldu farborða. Viðmiðunarmörk aðstoðar skulu miðast við 1/5 af grunnframfærslu einstaklings.

III. KAFLI
Réttur til fjárhagsaðstoðar.
Mat á fjárþörf og útreikningur fjárhagsaðstoðar.

10. gr.

Mat á fjárþörf.

Við ákvörðun á fjárhagsaðstoð skal grunnfjárþörf til framfærslu, sbr. 11. gr., lögð til grundvallar og frá henni dregnar heildartekjur, sbr. 13. gr.

Tekið skal tillit til sérstakra aðstæðna eftir því sem við á, sbr. reglur þessar.

11. gr.

Grunnfjárhæð.

Fjárhagsaðstoð til einstaklings 18 ára og eldri getur numið allt að kr. 137.827 á mánuði, hér eftir nefnd grunnfjárhæð. Grunnfjárhæð fylgir neysluvísitölu og breytist í janúar ár hvert. Grunnvísitala er 386 stig.

Fjárhagsaðstoð til hjóna og sambúðarfólks getur numið allt að kr. 220.523, þ.e. grunnfjárhæð x 1,6. Mat á fjárhagsaðstoð er óháð því hvort barn eða börn búa á heimilinu.

Þegar umsækjandi býr í foreldrahúsum, hjá ættingjum eða öðrum, sem ætla má að taki þátt í framfærslu viðkomandi með beinum eða óbeinum hætti, skal reiknuð framfærsla sem nemur 1/2 grunnfjárhæð.

Framfærslugrunnur einstaklinga og hjóna/sambúðarfólks í desembermánuði skal hækka um 30% af grunnfjárhæð hverju sinni.

12. gr.

Greiðslur meðlags.

Þegar umsækjandi er undir eða á viðmiðunarmörkum, er heimilt að taka tillit til meðlagsgreiðslna sem umsækjandi hefur greitt reglulega fram að þeim tíma að hann fær fjárhagsaðstoð. Hér er átt við meðlagsgreiðslur hverju sinni, en ekki uppsafnaðar meðlagsskuldir.

Slíkar greiðslur skulu þá inntar af hendi beint og milliliðalaust af hálfu fræðslu– og velferðarsviðs Húnaþings vestra til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

13. gr.

Tekjur og eignir umsækjenda.

Allar tekjur og bætur umsækjanda og maka/sambúðaraðila hans ef við á, í þeim mánuði sem sótt er um og tvo mánuði á undan eru taldar með við mat á fjárþörf. Með tekjum er átt við allar tekjur og greiðslur til umsækjanda og maka. Leigutekjur og hvers konar styrkir og hlunnindi teljast til tekna.

Þó skulu húsaleigubætur, vaxtabætur og greiðslur vegna barna ekki teljast til tekna.

Miða skal við heildartekjur fyrir skatta.

Endurgreiðslur ofgreiddra skatta teljast ekki til tekna, enda ekki tekið tillit til skattaskulda eða annarra skulda einstaklinga við útreikning á fjárhagsaðstoð.

Við útreikning á fjárhagsaðstoð skal taka mið af eignum öðrum en íbúðarhúsnæði til eigin nota/jörð sem búið er á.

Sé um aðrar eignir að ræða, s.s. húsnæði, peninga, eða sumarbústað, skal félagsmálaráð fjalla sérstaklega um málið og umsækjanda skal að jafnaði vísað á almenna lánafyrirgreiðslu þó að tekjur hans séu undir viðmiðunarmörkum.

Einstaklingar sem stunda nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna geta að öðru jöfnu ekki sótt um fjárhagsaðstoð. Sama á við um maka/sambúðaraðila námsmanns, enda sé gert ráð fyrir framfærslu maka við útreikning námslána.

14. gr.

Áfengis- og vímuefnaneysla.

Heimilt er að synja umsækjendum sem eru í neyslu áfengis og/eða annarra vímuefna um fjárhagsaðstoð en bjóða þeim að fara í áfengis- og vímuefnameðferð hjá viðurkenndum meðferðaraðilum á Íslandi. Heimilt er að veita þessum einstaklingum hálfa grunnfjárhæð í sérstökum undantekningartilfellum þegar skráning í meðferð liggur fyrir.

IV. KAFLI
Heimildir til fjárhagsaðstoðar vegna sérstakra aðstæðna.

15. gr.

Aðstoð til tekjulágra foreldra vegna barna á þeirra framfæri.

Heimilt er að veita foreldrum sem hafa haft tekjur undanfarna fjóra mánuði sem eru við eða lægri en grunnfjárhæð, sérstaka fjárhagsaðstoð. Aðstoðin er veitt til heimila þar sem börn búa hjá foreldrum eða foreldri sínu. Um er að ræða aðstoð til að greiða fyrir daggæslu barns í heimahúsum, leikskóla, skólamáltíðir, lengdan skóladag, sumardvöl og/eða þátttöku barns í þroskandi félags- og tómstundastarfi. Viðmiðunarmörk aðstoðar með hverju barni eru 1/8 hluti grunnfjárhæðar á mánuði. Ætíð skal liggja fyrir samþykkt um félagslega ráðgjöf. Ætíð skal vera um tímabundna samþykkt að ræða sem sætir endurskoðun á þriggja mánaða fresti. Heimilt er að veita tekjulágum foreldrum fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna þeirra. Hér er átt við foreldra sem hafa haft tekjur við eða lægri en grunnfjárhæð undanfarna 6 mánuði eða lengur. Skal styrkurinn miða að því að greiða áætlaðan bókakostnað og skólagjöld. Hámarksaðstoð skal miðast við þriðjung grunnfjárhæðar.

Heimilt er að veita fæðingarstyrk til foreldra þegar þeir eignast sitt fyrsta barn og eru með tekjur við eða lægri en grunnfjárhæð undanfarna 6 mánuði eða lengur og hafa átt við félagslega erfiðleika að etja. Aðstoðin er hugsuð til þess að kaupa útbúnað vegna barnsins. Viðmiðunarmörk aðstoðar skulu miðast við hálfa grunnfjárhæð.

Heimilt er að veita fermingarstyrk til foreldra sem eru með tekjur við eða lægri en grunnfjárhæð undanfarna 6 mánuði. Viðmiðunarmörk aðstoðar skulu miðast við hálfa grunnfjárhæð.

16. gr.

Greiðsla sérfræðiaðstoðar.

Heimilt er að veita þeim fjárhagsaðstoð til greiðslu nauðsynlegra tannlækninga sem hafa tekjur við eða undir grunnfjárhæð og uppfylla a.m.k. eitt eftirtalinna skilyrða:

a. Hafa átt við atvinnuleysi að stríða eða verið tekjulausir undanfarna sex mánuði eða lengur.
b. Eru lífeyrisþegar.
c. Hafa notið fjárhagsaðstoðar til framfærslu til lengri tíma.

Kostnaðaráætlun tannlæknis skal fylgja með umsókn. Viðmiðunarmörk aðstoðar skulu miðast við hálfa grunnfjárhæð á ári.

Heimilt er í eftirtöldum aðstæðum að veita fjárhagsaðstoð til greiðslu viðtala hjá félagsráðgjöfum, geðlæknum og sálfræðingum, sem lið í umfangsmeiri aðstoð:

a. Einstaklingum sem hafa átt við mikla félagslega erfiðleika að stríða.
b. Einstaklingum eða fjölskyldum sem hafa orðið fyrir alvarlegum áföllum, svo sem skyndilegum ástvinamissi eða alvarlegu ofbeldi.

Viðmiðunarmörk aðstoðar skal miðast við hálfa grunnfjárhæð á ári.

17. gr.

Útfararstyrkir.

Heimilt er að veita aðstoð til greiðslu útfararkostnaðar þegar staðreynt hefur verið að dánarbúið getur ekki staðið undir útför hins látna. Viðmiðunarmörk aðstoðar skulu miðast við eina og hálfa grunnfjárhæð. Samþykkt aðstoð greiðist gegn framvísun reiknings frá útfararstofu og annarra gagna um kostnað vegna útfarar.

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja umsókn um útfararstyrk:

a. Staðfest ljósrit af skattframtali hins látna.
b. Launaseðlar og greiðsluyfirlit frá tryggingum og lífeyrissjóðum.
c. Staðfesting frá stéttarfélagi um rétt til útfararstyrks.
d. Tilkynning sýslumanns um skiptalok á grundvelli eignayfirlýsingar, sbr. 25. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl. nr. 20/1991, eða leyfi til einkaskipta útgefið af sýslumanni til erfingja skv. 31. gr., sbr. 28. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl.

Heimilt er að veita eftirlifandi maka lán eða styrk vegna útfararkostnaðar þegar dánarbúið getur ekki greitt fyrir útför hins látna og eignir eftirlifandi maka eru ekki aðrar en íbúðarhúsnæði sem umsækjandi býr í. Heimilt er að veita tekjulágu foreldri eða foreldrum fjárhagsaðstoð vegna útfararkostnaðar barns.

18. gr.

Námsaðstoð.

Námsstyrki er heimilt að veita í eftirfarandi tilvikum og miðast aðstoðin við grunnfjárhæð mánaðarlega ásamt almennum skólagjöldum, innritunarkostnaði og bókakostnaði eða að hámarki því sem nemur þriðjungi grunnfjárhæðar hverja námsönn:

1. Til einstaklinga/einstæðra foreldra 18-24 ára sem hafa átt í miklum félagslegum erfiðleikum og hafa ekki lokið grunnskóla eða framhaldsskóla. Viðkomandi þarf að hafa haft atvinnutekjur undir eða við grunnfjárhæð sl. tólf mánuði.

2. Til einstaklinga sem hafa verið atvinnulausir án bótaréttar eða þegið fjárhagsaðstoð í sex mánuði eða lengur og hafa ekki lokið grunnnámi sem gefur rétt á námsláni.

Aðstoðin skal vera liður í umfangsmeiri vinnu starfsmanna fræðslu- og velferðarsviðs sem miðar m.a. að því að gera viðkomandi kleift að lifa efnahagslega sjálfstæðu lífi.

Starfsmaður og námsmaður gera með sér samkomulag um hvernig skuli staðið að skilum varðandi skólasókn, námsframvindu og/eða einkunnir. Einkunnum skal þó ætíð skilað í annarlok.

Miðað skal við að námið leiði til þess að nemandi geti síðar hafið nám sem er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.

Ákvarðanir um námskostnað skulu teknar fyrir hverja önn og er heimilt að halda námsaðstoð áfram með hliðsjón af námsframvindu að hámarki í þrjár annir.

Meðlag sem umsækjandi kann að fá vegna náms reiknast honum til tekna.

V. KAFLI
Málsmeðferð sbr. ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993
og ákvæði XV. og XVI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

19. gr.

Könnun á aðstæðum.

Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um fjárhagsaðstoð hefur borist. Sama á við ef fræðslu- og velferðarsviði Húnaþings vestra berast upplýsingar um nauðsyn á aðstoð með öðrum hætti.

Fræðslu- og velferðarsvið Húnaþings vestra skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og sjá jafnframt til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.

20. gr.

Samvinna við umsækjanda.

Öflun gagna og upplýsinga skal unnin í samvinnu við umsækjanda. Við meðferð umsóknar og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er, að öðrum kosti talsmann hans ef við á.

21. gr.

Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.

Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfsmenn fræðslu- og velferðarsviðs Húnaþings vestra og fulltrúar í félagsmálaráði kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu er þeim óheimilt að fjalla um þau mál við óviðkomandi nema að fengnu samþykki viðkomandi.

Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.

22. gr.

Leiðbeiningar til umsækjanda.

Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda félagslega og fjárhagslega ráðgjöf og veita upplýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Berist skriflegt erindi sem ekki snertir starfssvið fræðslu- og velferðarsviðs Húnaþings vestra, skal starfsmaður í samráði við umsækjanda framsenda erindið á réttan stað svo fljótt sem auðið er.

23. gr.

Niðurstaða og rökstuðningur synjunar.

Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal umsækjandi fá svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.

24. gr.

Rangar og villandi upplýsingar.

Fjárhagsaðstoð veitt á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær er endurkræf og getur fræðslu- og velferðarsvið Húnaþings vestra endurkrafið viðkomandi um fjárhæðina samkvæmt almennum reglum kröfuréttar. Ef sannreynt er við vinnslu máls að upplýsingar sem umsækjandi hefur veitt eru rangar eða villandi stöðvast afgreiðsla umsóknarinnar.

25. gr.

Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.

Fræðslu- og velferðarsvið tekur ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði félagsmálaráðs.

26. gr.

Kynning á ákvörðun um fjárhagsaðstoð.

Þar sem fræðslu- og velferðarsvið hefur umboð til að taka ákvörðun um fjárhagsaðstoð skal kynna umsækjanda niðurstöðu sviðsins tryggilega og um leið rétt hans til að fara fram á að félagsmálaráð fjalli um umsóknina. Umsækjandi hefur að öðru jöfnu fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til félagsmálaráðs frá því honum barst vitneskja um ákvörðun. Félagsmálaráð skal fjalla um umsókn og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.

Ákvörðun félagsmálaráðs skal kynnt umsækjanda tryggilega og um leið skal honum kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.

27. gr.

Málskot til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.

Umsækjandi getur skotið ákvörðun félagsmálaráðs til úrskurðarnefndar félagsþjónustu. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því umsækjanda barst vitneskja um ákvörðun félagsmálaráðs.

28. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 21. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 með síðari breytingum, voru samþykktar á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 14. júní 2012 að fengnum tillögum frá félagsmálaráði og taka gildi þegar í stað. Frá sama tíma falla úr gildi reglur nr. 752/2004 um fjárhagsaðstoð hjá Húnaþingi vestra.

Hvammstanga, 10. júlí 2012.

Skúli Þórðarson,
sveitarstjóri Húnaþings vestra.


B-deild - Útgáfud.: 25. júlí 2012

  Til baka