Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 301/2014

Nr. 301/2014 4. mars 2014
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 350/2009 um kennslanefnd.

1. gr.

3. mgr. 1. gr. orðist svo:

Að fenginni tillögu frá ríkislögreglustjóra, landlækni og tannlæknadeild Háskóla Íslands, skipar innanríkisráðherra nefndarmenn og varamenn til þriggja ára. Nefndarmenn skulu við störf sín bera sérstök skilríki útgefin af ríkislögreglustjóra.

2. gr.

Í stað orðsins „dómsmálaráðuneytinu“ í 4. mgr. 6. gr. kemur: ríkislögreglustjóra.

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 40. gr. lögreglulaga nr. 90 13. júní 1996, öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 4. mars 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. mars 2014