1. gr. Við 2. mgr. 1. gr. reglna nr. 1100/2008 bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá gilda reglurnar, eftir því sem við á, um meðferð upplýsinga um látna einstaklinga. 2. gr. Fyrirsögn 3. gr. reglnanna hljóði svo: Upplýst samþykki, fræðsla og andmæli. 3. gr. Við 3. gr. reglnanna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Óheimilt er að afla viðkvæmra upplýsinga um látinn mann, þ. á m. lífsýna, til nota við framkvæmd erfðarannsóknar hafi viðkomandi með sannanlegum hætti andmælt vinnslu persónuupplýsinga um sig í þágu vísindarannsókna. Ef upplýsingar um látinn mann geta falið í sér viðkvæmar upplýsingar um niðja skal virða andmæli þeirra, nema sérstaklega standi á. 4. gr. Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr., 2. mgr. 30. gr., 3. mgr. 32. gr. og 2. málsl. 33. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, öðlast þegar gildi. Persónuvernd, 19. apríl 2010. Páll Hreinsson. Sigrún Jóhannesdóttir. |