Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 798/2012

Nr. 798/2012 14. september 2012
AUGLÝSING
um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Reykjavíkurborg.

1. gr.

Aukastöðugjald vegna brota á reglum um notkun stöðureita, sbr. 2. mgr. 83. gr. umferðar­laga nr. 50/1987, sbr. f-lið 1. mgr. 108. gr. sömu laga, skal vera 2.500 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

2. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota sbr. a-e lið 1. mgr. 108. gr. umferðar­laga nr. 50/1987, að undanskildum j-lið 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr., skal vera 5.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

3. gr.

Stöðvunarbrotagjald vegna j-liðar 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr. umferðar­laga nr. 50/1987 (bílastæði fatlaðra) skal vera 10.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.

4. gr.

Frestur til að andmæla stöðvunarbrotagjöldum er 28 dagar frá dagsetningu álagningar.

5. gr.

Séu gjöldin greidd innan 14 daga frá álagningu gilda ofangreindar fjárhæðir, en hækka eftir það um 50%, sbr. 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Sé gjald enn ógreitt þegar 28 dagar eru liðnir frá álagningu, hækkar það um 100% frá upphaflegu gjaldi, án tillits til staðgreiðsluafsláttar og undangenginnar 50% hækkunar eftir 14 daga, sbr. 6. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

6. gr.

Gjaldskrá þessi sem borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt staðfestist hér með sam­kvæmt 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, sbr. reglur um álagningu og innheimtu gjalds vegna stöðvunarbrota nr. 104/1998, sbr. breytingu á regl­unum nr. 226/2004, og öðlast gildi við birtingu.

Jafnframt fellur úr gildi auglýsing um gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Reykjavíkurborg nr. 414/2010.

Innanríkisráðuneytinu, 14. september 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

B deild - Útgáfud.: 3. október 2012