Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 52/2012

Nr. 52/2012 2. janúar 2012
GJALDSKRÁ
fyrir móttöku úrgangs í Stekkjarvík í Blönduósbæ.

1. gr.

Stjórn Norðurár bs. ákveður gjöld fyrir móttöku úrgangs í urðunarstaðnum Stekkjarvík í Blönduósbæ samkvæmt 10. gr. reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs.

2. gr.

Heimild til gjaldtöku er m.a. byggð á reglugerð nr. 737/2003 og ákvæði gr. 2.10 í starfs­leyfi urðunarstaðarins þar sem segir m.a.: „Rekstraraðili urðunarstaðar skal innheimta gjald vegna urðunar úrgangs, sbr. 11. gr. laga nr. 55/2003. Gjaldið skal nægja fyrir öllum kostnaði við urðun úrgangsins, þar með talið uppsetningu og rekstri viðkomandi urðunarstaðar. Einnig skal gjaldið að svo miklu leyti sem hægt er standa undir kostnaði sem fylgir því að setja fjárhagslega tryggingu eða jafngildi hennar, sbr. 1. mgr. gr. 2.11 í starfsleyfi þessu, og áætluðum kostnaði við lokun staðarins og nauðsynlegt eftirlit í kjölfar lokunar í 30 ár.“

3. gr.

Gjaldskrá vegna urðunar í Stekkjarvík:

Sorpflokkar

Skilgreining á úrgangi

kr./kg

án vsk

Lágmarksgjald

án vsk

17 06 01

Asbest, einangrunarefni sem inniheldur asbest

20,00

2.000 kr.

20 03 07

Blandaður úrgangur frá fyrirtækjum

7,70

2.000 kr.

20 03 01

Blandaður úrgangur frá sveitarfélögum

7,70

2.000 kr.

13 05 08

Blandaður úrgangur úr sandföngurum og olíuskiljum

10,00

2.000 kr.

20 03 04

Eðja frá rotþróm, skólphreinsun

15,00

2.000 kr.

20 01 02

Gler

7,70

2.000 kr.

19 01 16

Ketilryk/kolasalli

15,00

2.000 kr.

17 02 03

Plast

7,70

2.000 kr.

02 02 99

Skel og annar úrgangur frá rækjuvinnslu

10,00

2.000 kr.

03 01 03

Spænir, bútar, kurlað timbur

4,50

2.000 kr.

20 01 99

Stór húsgögn, dýnur, grófur timburúrgangur

10,00

2.000 kr.

17 00 00

Úrgangur frá byggingu og niðurrifi mannvirkja

10,00

2.000 kr.

02 02 00

Úrgangur frá vinnslu kjöts og fisks

15,00

2.000 kr.

20 02 01

Úrgangur sem brotnar niður, lífrænn garðaúrgangur

7,70

2.000 kr.

02 01 99

Veiðarfæri

15,00

2.000 kr.

Annað

Aðstoð við að losa gáma vegna frosts

Skv. tilkostnaði

Á urðunarstaðnum er ekki tekið við sláturúrgangi, dýrahræjum og öðrum smitandi úrgangi.

Komi til urðunarstaðarins úrgangur sem ekki er heimilt að urða er flutningsaðili ábyrgur fyrir þeim kostnaði sem af því hlýst.

4. gr.

Starfsmaður Norðurár bs. í Stekkjarvík ákveður, að fenginni lýsingu flutningsaðila og samkvæmt eigin mati, í hvaða flokk úrgangur fellur skv. gjaldskránni. Flutningsaðili á úrgangi til urðunarstaðar ábyrgist greiðslu gjalda skv. gjaldskrá.

Starfsmaður annast sömuleiðis vigtun úrgangs og skráir magn og hver er við­skipta­maður.

5. gr.

Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari má innheimta gjöld með fjárnámi hjá úrgangshafa án undangengis dóms, sbr. lokamálslið 4. mgr. 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 með síðari breytingum, sbr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989.

6. gr.

Gjaldskrá þessi, sem er samin og samþykkt af stjórn Norðurár bs. 24. nóvember 2011 og gildir frá 1. janúar 2012. Stjórn Norðurár bs. er heimilt að hækka gjaldskrána árlega í samræmi við breytingar á neysluvísitölu án þess að sú breyting sé auglýst sérstaklega í B-deild Stjórnartíðinda. Með gjaldskrá þessari fellur úr gildi fyrri gjaldskrá nr. 444/2011.

F.h. stjórnar Norðurár bs., 2. janúar 2012.

Magnús B. Jónsson, formaður stjórnar.

B deild - Útgáfud.: 25. janúar 2012