1. gr. Frá og með 15. september 2011, til og með 15. nóvember 2011, eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni sem markast af línum sem dregnar eru á milli eftirgreindra punkta: - 65°25,34´N - 26°26,94´V
- 65°25,34´N - 26°24,53´V
- 65°17,00´N - 26°24,53´V
- 65°17,00´N - 26°26,94´V
2. gr. Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. 3. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. september 2011. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Indriði B. Ármannsson. |