Frestur skattstjóra til að úrskurða kærur lögaðila vegna álagningar opinberra gjalda árið 2009 er hér með framlengdur til 20. apríl 2010. Ákvörðun þessi, sem byggir á heimild í 120. gr. laga nr. 90/2003, tekur þegar gildi. Reykjavík, 29. desember 2009. | F.h. ríkisskattstjóra, | Ingvar J. Rögnvaldsson. |
Guðrún Jenný Jónsdóttir. |