Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
89/2010
|
1. gr. Gjald skal taka sérstaklega komi til haustskoðunar, sbr. 11. gr. laga nr. 103/2002, um búfjáreftirlit o.fl. og skal miðað við að það sé heildargjald. Gjald fyrir hverja skoðun er kr. 6.500 með virðisaukaskatti. Innifalin er vinna og akstur. 2. gr. Eftirlitsgjald, sbr. 15. og 16. gr. laga nr. 103/2002, um búfjáreftirlit o.fl., skal vera kr. 6.500 með virðisaukaskatti fyrir hverja heimsókn. Innifalin er vinna og akstur. 3. gr. Komi til þess að grípa þurfi til handsömunar, fóðrunar og hýsingar búfjár, sbr. ákvæði 4. mgr. 10. gr. laga nr. 103/2002, skal búfjáreigandi greiða gjald sem nemur útlögðum kostnaði sveitarfélagsins í hvert sinn. 4. gr. Þurfi að leita dómsúrskurðar til að tryggja eftirlitsaðilum aðgang að gripahúsum, sbr. 15. gr. laga nr. 103/2002 um búfjáreftirlit o.fl., skal hlutaðeigandi umráðamaður búfjár greiða gjald sem nemur útlögðum kostnaði sveitarfélagsins í hverju úrskurðarmáli. 5. gr Gjald samkvæmt 1. og 2. gr. þessarar gjaldskrár uppfærist til samræmis við breytingu á vísitölu neysluverðs án húsnæðis miðað við 1. nóvember hvert ár. 6. gr. Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 4. mgr. 10. gr. laga um búfjárhald o.fl. nr. 103/2002 og tekur þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. janúar 2010. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Arnór Snæbjörnsson.
|
B-deild - Útgáfud.:
3. febrúar 2010
|