1. gr. Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 74/2009, frá 29. maí 2009, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 494/2009 frá 3. júní 2009 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal, IAS-staðal 27. 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 494/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 64/2010, 18. nóvember 2010, bls. 533. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 68/2009, 17. desember 2009, bls. 17. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er að eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi. Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 25. nóvember 2010. Árni Páll Árnason. Kjartan Gunnarsson. |