1. gr. 1. gr. gjaldskrárinnar orðast svo: Tímagjald lögreglumanna samkvæmt a-lið 3. mgr. 31. gr. reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 585 29. júní 2007, skal vera 3.661 kr. Grundvöllur gjaldsins er eftirfarandi: Laun pr. yfirvinnuklst. skv. launatöflu lögreglumanna 1. maí 2008: | kr. | Launaflokkur 10-5: | 2.510 | Álag 20%: | 503 | Samtals: | 3.013 | Launatengd gjöld 21,53%: | 648 | Alls: | 3.661 |
2. gr. Breyting þessi á gjaldskrá nr. 634 12. júlí 2007, sem sett er með heimild í 5. mgr. 31. gr. reglugerðar nr. 585 29. júní 2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, sbr. 7. mgr. 17. gr. laga nr. 85 29. mars 2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, öðlast þegar gildi. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 17. júlí 2008. Björn Bjarnason. Dís Sigurgeirsdóttir. |