Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
995/2009
|
1. gr. Almenn ákvæði. Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir varðandi Gíneu sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993. Þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins varðandi Gíneu byggja á sameiginlegri afstöðu ráðs Evrópusambandsins 2009/788/CFSP frá 27. október 2009. Gerðir Evrópusambandsins, þ.m.t. uppfærðir listar yfir aðila og hluti sem þvingunaraðgerðir beinast að eða varða, eftir því sem við á, eru birtar á vefsetri þess (http://ec.europa.eu/external_relations/cfsp/sanctions/index_en.htm). Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skulu gilda um framkvæmd reglugerðar þessarar. 2. gr. Vopnasölubann. Vopnasölubann skal gilda gagnvart Gíneu, sbr. 1.-2. gr. 2009/788/CFSP. 3. gr. Landgöngubann. Einstaklingum, sem tilgreindir eru í viðauka, er óheimilt að koma til landsins eða hafa hér viðkomu, sbr. 3. gr. 2009/788/CFSP. 4. gr. Undanþágur frá þvingunaraðgerð. Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum sem gripið hefur verið til á grundvelli gerða Evrópusambandsins, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. 5. gr. Viðurlög. Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. 6. gr. Heimild. Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008. 6. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Utanríkisráðuneytinu, 30. nóvember 2009. Össur Skarphéðinsson. Einar Gunnarsson. VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
15. desember 2009
|