1. gr. Stjórn Norðurár byggðasamlags ákveður gjöld fyrir móttöku úrgangs í urðunarstaðnum Stekkjarvík í Blönduóssbæ samkvæmt 10. gr. reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs. 2. gr. Heimild til gjaldtöku er m.a. byggð á reglugerð nr. 737/2003 og ákvæði 2.10 gr. í starfsleyfi urðunarstaðarins Stekkjarvíkur þar sem segir m.a.: „Rekstraraðili urðunarstaðar skal innheimta gjald vegna urðunar úrgangs, sbr. 11. gr. laga nr. 55/2003. Gjaldið skal nægja fyrir öllum kostnaði við urðun úrgangsins, þar með talið uppsetningu og rekstri viðkomandi urðunarstaðar. Einnig skal gjaldið að svo miklu leyti sem hægt er standa undir kostnaði sem fylgir því að setja fjárhagslega tryggingu eða jafngildi hennar, sbr. 1. mgr. gr. 2.11 í starfsleyfi þessu, og áætluðum kostnaði við lokun staðarins og nauðsynlegt eftirlit í kjölfar lokunar í 30 ár." 3. gr. Gjaldskrá vegna urðunar í Stekkjarvík: Lýsing á sorpflokkum | Kr./kg án vsk. | Lágmarksgjald án vsk. | Almennt sorp til urðunar á starfssvæði Norðurár bs. | 7,7 | 2.000 | Almennt sorp til urðunar utan starfssvæðis Norðurár bs. | 8,2 | 2.000 | Grófur timbur- eða byggingarúrgangur | 15 | 2.000 | Timburkurl óflokkað en kurlað í stærðina 5-10 sm | 4,5 | 2.000 | Garðaúrgangur | 7,7 | 2.000 | Asbest - móttaka og stöflun asbeströra | 20 | 2.000 | Veiðarfæri - net, troll, kaðlar og plastkör | 15 | 2.000 | Múrbrot og hliðstæður úrgangur | 2,5 | 2.000 | Aðstoð við að losa gáma, t.d. vegna frosts | | 3.000 |
Á urðunarstaðnum er ekki tekið við sláturúrgangi, dýrahræjum og öðrum smitandi úrgangi. Komi til urðunarstaðarins úrgangur sem ekki er heimilt að urða er flutningsaðili ábyrgur fyrir þeim kostnaði sem af því hlýst. 4. gr. Starfsmaður Norðurár bs. í Stekkjarvík ákveður, að fenginni lýsingu flutningsaðila og samkvæmt eigin mati, í hvaða flokk úrgangur fellur skv. gjaldskránni. Flutningsaðili á úrgangi til urðunarstaðar ábyrgist greiðslu gjalda skv. gjaldskrá. Starfsmaður annast sömuleiðis vigtun úrgangs og skráir magn og hver sé viðskiptamaður. 5. gr. Verði vanskil á greiðslu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari er hægt að innheimta gjöld með fjárnámi hjá úrgangshafa án undangengis dóms, sbr. lokamálslið 4. mgr. 11. gr. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003 með síðari breytingum, sbr. 1. gr. laga um aðför nr. 90/1989. 6. gr. Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af stjórn Norðurár bs. 15. febrúar 2011. Stjórn Norðurár bs. er heimilt að hækka gjaldskrána árlega í samræmi við breytingar á neysluvísitölu án þess að sú breyting sé auglýst sérstaklega í B-deild Stjórnartíðinda. F.h. stjórnar Norðurár bs., 7. apríl 2011, Magnús B. Jónsson formaður. |