Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða húsið að Thorvaldsensstræti 2, gamla Kvennaskólann í Reykjavík. Friðunin nær til ytra byrðis framhússins. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 21. júní 2011. Svandís Svavarsdóttir. Karitas H. Gunnarsdóttir. |