1. gr. Eftirfarandi nám og námskeið teljast til vinnumarkaðsúrræða: - Nám sem haldið er samkvæmt námskrá sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur viðurkennt.
- Nám sem haldið er á vegum fræðslustofnana atvinnulífsins.
- Önnur námskeið en þau sem talin eru í a. og b. liðum og haldin eru á vegum símenntunarmiðstöðva.
- Námskeið sem haldin eru á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
- Námskeið/nám sem haldið er á vegum endurmenntunarstofnana háskólanna.
- Nám á verk- og starfsnámsbrautum á framhaldsskólastigi og frumgreinanám sem boðið er á forsendum fullorðinsfræðslu, þ.e. námið og uppbygging þess tekur mið af og er sniðið að þörfum fólks sem hefur verið þátttakandi á vinnumarkaði.
- Námskeið á vegum endurhæfingarmiðstöðva.
- Önnur námskeið sem eru líkleg til að styrkja fólk á vinnumarkaði að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Nám sem er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna, hvort sem um er að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám, telst þó ekki námsúrræði skv. d-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Hið sama gildir um nám á námsbrautum sem leiða til stúdentsprófs hjá framhaldsskólum. 2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 12. gr. laga nr. 55/2006, um vinnumarkaðsaðgerðir, að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, öðlast þegar gildi. Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 9. janúar 2009. Jóhanna Sigurðardóttir. Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir. |