1. gr. Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður i, sem orðast svo: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1131/2008 frá 14. nóvember 2008. 2. gr. Viðauki A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 715/2008 frá 24. júlí 2008 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður. 3. gr. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 1131/2008 frá 14. nóvember 2008 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sem merkt er fylgiskjal I með reglugerð þessari. 4. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 11. desember 2008. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |