1. gr. Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2013, frá 15. júlí 2013, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1255/2012 frá 11. desember 2012 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IAS-staðal) 12, og alþjóðlegan reikningsskilastaðal (IFRS-staðal) 1 og 13, og 20. túlkun alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil (IFRIC-túlkun 20). 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 1255/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 56/2013, 10. október 2013 bls. 1135. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2013 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2013. | F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, | Valgerður Rún Benediktsdóttir. |
Harpa Theodórsdóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |