Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
396/2008
|
1. gr. Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur nr. 277/2008: a) | Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður g, sem er svohljóðandi: | | | Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 331/2008 frá 11. apríl 2008. | b) | Fylgiskjal I með reglugerð þessari kemur í stað fylgiskjals I við reglugerðina. | c) | Viðauki A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður. |
2. gr. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 331/2008 frá 11. apríl 2008 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sem merkt er fylgiskjal V með reglugerð þessari. 3. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 sem síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 22. apríl 2008. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
29. apríl 2008
|