HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gjöra kunnugt: Að vér samkvæmt tillögu forsætisráðherra staðfestum eftirfarandi reglugerð um breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands, nr. 3/2004: 1. gr. Við 3. gr. bætist nýr tölul., svohljóðandi: 25. Þjóðskrá og almannaskráningu. 2. gr. 6. tölul. 6. gr. falli brott. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 8. gr. laga nr. 73/1969 um Stjórnarráð Íslands, öðlast þegar gildi. Gjört í Reykjavík, 28. ágúst 2006. Geir H. Haarde. | Sólveig Pétursdóttir. (L. S.) | Gunnlaugur Claessen. |
Geir H. Haarde. |