1. gr. Í stað lokamálsliðar 2. mgr. 11. gr. kemur: Ráðstöfun 87,6 milljóna kr. til einstakra verkefna skal vera sem hér segir: a) Kynbótaverkefni: 50,4 milljónir króna. b) Til nýliðunar í stétt mjólkurframleiðanda: 25,0 milljónir króna. c) Þróunarfé til rannsókna- og/eða þróunarverkefna í nautgriparækt: 12,2 milljónir króna. 2. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. desember 2012. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 25. maí 2012. F. h. r. Sigurgeir Þorgeirsson. Ása Þórhildur Þórðardóttir. |