1. gr. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna lögbundins eftirlits með geislatækjum og geislavirkum efnum í samræmi við 5. og 17. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir, með síðari breytingum. Gjaldið skal vera sem hér segir: 1. | Röntgentæki: | | kr. | | a) | Föst röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – myndataka | 49.722 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 16.617 | | b) | Föst röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – skyggning | 62.053 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 20.774 | | c) | Tölvusneiðmyndatæki | 82.826 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 49.722 | | d) | Færanleg röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – myndataka | 41.419 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 12.460 | | e) | Færanleg röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – skyggning | 49.722 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | 16.617 | | f) | Tannröntgentæki | 24.790 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 10.316 | | g) | Iðnaðarröntgentæki | 40.474 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 20.774 | | h) | Dýralækningaröntgentæki | 41.445 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 12.460 | | i) | Öryggisröntgentæki | 28.949 | | | fyrir hvert eins tæki til viðbótar: | | | | 4 eða færri á sama stað | 12.460 | | | fyrir hvert tæki umfram 5 á sama stað | 8.314 | | j) | Röntgentæki til efnarannsókna og gæðaeftirlits í iðnaði | 24.790 | | | fyrir hvert tæki til viðbótar | 8.314 | | | | | 2. | Geislalækningatæki: | | 58.038 | | fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild | | 16.617 | | | | | 3. | Geislavirk efni, opnar geislalindir: | | | | Rannsóknastofa í flokki A | | 66.208 | | Rannsóknastofa í flokki B | | 48.604 | | Rannsóknastofa í flokki C | | 32.362 | | | | | 4. | Geislavirk efni, lokaðar geislalindir: | | | | Nifteindalindir | | 41.406 | | fyrir hverja nifteindalind til viðbótar hjá sama aðila | | 16.244 | | aðrar lokaðar geislalindir | | 38.482 | | fyrir hverja eins lind til viðbótar: | | | | 4 eða færri til viðbótar á sama stað | | 10.316 | | fyrir hverja lind umfram 5 á sama stað | | 8.314 | | | | | 5. | Eftirlit með geislaálagi starfsfólks: | | | | Filmumælingar, fyrir hverja filmu | | 749 | | TLD mælingar, fyrir hvert mælitímabil | | 1.870 | | Fyrir hvert týnt eða skemmt TLD hylki þarf að greiða | | 3.656 |
2. gr. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna mats á umsóknum um leyfi í samræmi við 7. og 9. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir, með síðari breytingum. Gjaldið skal vera sem hér segir: 1. | Vegna röntgentækja til sjúkdómsgreiningar: | kr. | | a) | Leyfi vegna nýrra tækja | 10.316 | | b) | Leyfi vegna breytinga á eldri búnaði | 8.314 | | | | | | 2. | Vegna iðnaðar-, öryggis- og efnarannsóknatækja: | | Leyfi vegna nýrra tækja og breytinga | 8.314 | | | | | | 3. | Vegna lokaðra geislalinda: | | a) | Nifteindalindir | 12.460 | | b) | Aðrar geislalindir | 10.316 | | | | | | 4. | Vegna opinna geislalinda: | | | a) | Ný starfsemi | | | | | i. | Flokkur A | 16.617 | | | ii. | Flokkur B | 12.460 | | | iii. | Flokkur C | 8.314 | | b) | Árleg endurnýjun | | | i. | Flokkur A | 8.987 | | | ii. | Flokkur B | 8.314 | | | iii. | Flokkur C | 6.160 | | | | | | 5. | Vegna leysibenda | 8.314 |
3. gr. Geislavarnir ríkisins annast innheimtu leyfis- og eftirlitsgjalda. Leyfis- og eftirlitsgjöld falla í gjalddaga við útgáfu reiknings með eindaga 30 dögum síðar. 4. gr. Eigandi eða ábyrgðarmaður getur óskað eftir aukaeftirliti og skal þá greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða. Þurfi Geislavarnir ríkisins að endurtaka eftirlit vegna athugasemda sem gerðar voru við reglubundið eftirlit skal greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða. 5. gr. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald sem nemur 9.020 kr./klst. fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða hún tekur að sér samkvæmt lögum og reglugerðum. 6. gr. Eftirlits- og leyfisgjöld eru tryggð með lögveðsrétti í eftirlitsskyldum tækjum í 2 ár eftir gjalddaga. 7. gr. Fyrir hverja mælingu á geislavirkni eða rafsegulssviði skal stofnunin innheimta gjald, að upphæð kr. 22.552. Fyrir hverja yfirlýsingu um geislavirkni sem stofnunin lætur í té, skal innheimta kr. 3.418. Fyrir mælingar á rafsegulsviði, útfjólublárri geislun og geislun frá leysum skal stofnunin innheimta kr. 22.552 fyrir allt að 8 mælingar á sama stað. Fyrir mælingu á geislun frá leysibendi skal stofnunin innheimta kr. 9.291 fyrir allt að 4 mælingar. Fyrir hverja mælingu þar til viðbótar á sama stað skal innheimta kr. 2.560. 8. gr. Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 19. gr. og 21. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnir, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá Geislavarna ríkisins nr. 307/2014. Velferðarráðuneytinu, 12. mars 2015. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Margrét Björnsdóttir. |