Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
633/2010
|
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir: Breyting á deiliskipulagi við Grund á Flúðum. Í breytingunni felst að lóðir 2 og 4 verða sameinaðar í eina lóð fyrir verslun og þjónustu og verður eftir sameiningu lóð nr. 2. Á lóðinni er gert ráð fyrir stækkun núverandi gistiheimilis. Þá er gert ráð fyrir að lóð nr. 6 verði lóð nr. 4 þar sem heimilt verði að vera með 20 bílastæði. Samþykkt í sveitarstjórn 7. apríl 2010.
Deiliskipulag í landi Garðs og Hvamms, lóðir undir ferðaþjónustu. Í deiliskipulaginu felst að gert er ráð fyrir breyttri notkun núverandi bygginga í tengslum við ferðaþjónustu. Skipulagssvæðið er 1,86 ha og tekur til lóðarinnar Garðs og hluta úr lóð Hverahólma. Á lóðinni Hverahólma er um 900 m² náttúrulaug sem ráðgert er að útbúa sem sundlaug opna almenningi. Samþykkt í sveitarstjórn 1. apríl 2009.
Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi. Laugarvatni, 15. júlí 2010. | Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps, | Pétur Ingi Haraldsson. |
|
B-deild - Útgáfud.:
29. júlí 2010
|