Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 384/2015

Nr. 384/2015 24. apríl 2015
REGLUGERÐ
um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 157/2014 um skilyrði fyrir rafrænni vinnslu yfirlýsingar um nothæfi byggingarvara.

1. gr.

Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Eftirtalin reglugerð sem vísað er til í XXI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efna­hags­svæðið, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. við­auka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 157/2014 frá 30. október 2013 um skilyrði fyrir því að gera yfirlýsingu um nothæfi byggingarvara tiltæka á vefsetri, sem vísað er til í XXI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahags­svæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 23/2015, frá 25. febrúar 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 16/2015, 19. mars 2015, bls. 887.

2. gr.

Innleiðing tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 157/2014 frá 30. október 2013 um skilyrði fyrir því að gera yfirlýsingu um nothæfi bygg­ingarvara tiltæka á vefsetri.

3. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. tölul. 7. gr. laga nr. 114/2014 um byggingarvörur.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. apríl 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 27. apríl 2015