1. gr. Fjöldi þeirra nemenda sem öðlast rétt til náms á vormisseri 1. námsárs í hjúkrunarfræði í janúar 2008 við heilbrigðisdeild miðast við grunntöluna 48 nemendur. 2. gr. Ákvörðun þessi, tekin af háskólaráði, skv. lögum nr. 40/1999, öðlast þegar gildi. Háskólanum á Akureyri, 25. maí 2007. Guðmundur Heiðar Frímannsson, staðgengill rektors. Ingi Rúnar Eðvarðsson, varaforseti háskólaráðs. |