1. gr.
2. gr. auglýsingarinnar orðist svo:
Stöðvunarbrotagjald vegna annarra stöðvunarbrota, sbr. a–e-lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að undanskildum j-lið 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr., skal vera 10.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.
2. gr.
3. gr. auglýsingarinnar orðist svo:
Stöðvunarbrotagjald vegna j-liðar 1. mgr. 28. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 (bílastæði fatlaðra) skal vera 20.000 kr. Veittur er 1.100 kr. afsláttur ef greitt er í bankastofnun eða heimabanka innan þriggja virkra daga frá álagningu gjaldsins.
3. gr.
Breyting á gjaldskrá þessari sem borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 108. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, sbr. reglur um álagningu og innheimtu gjalds vegna stöðvunarbrota nr. 104/1998, sbr. breytingu á reglunum nr. 226/2004, og öðlast gildi við birtingu.
Innanríkisráðuneytinu, 25. júní 2015.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
|