Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 476/2007

Nr. 476/2007 10. maí 2007
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um varasjóð húsnæðismála, nr. 656/2002, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 32. gr. reglugerðarinnar.

  1. Í stað „3. mgr. 47. gr.“ í 3. tölul. 1. mgr. kemur: 2. og 3. mgr. 47. gr.
  2. Í stað orðanna „af áhvílandi lánum“ í 3. mgr. kemur: af eftirstöðvum áhvílandi lána, þó ekki hærra en 40 hundraðshlutum.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 50. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, og 5. tölul. bráðabirgðaákvæðis VIII við sömu lög, öðlast þegar gildi.

Félagsmálaráðuneytinu, 10. maí 2007.

Magnús Stefánsson.

Sesselja Árnadóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. maí 2007