Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1133/2006
|
Viðarrimi 12. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög, samþykkti skipulagsráð Reykjavíkurborgar þann 6. desember 2006 breytingu á deiliskipulagi fyrir Rimahverfi vegna Viðarrima 12. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Breytingin öðlast þegar gildi. Jónsgeisli 89. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög, samþykkti skipulagsráð Reykjavíkurborgar þann 6. desember 2006 breytingu á deiliskipulagi fyrir Grafarholt vegna Jónsgeisla 89. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Breytingin öðlast þegar gildi. Háagerði 43. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög, samþykkti skipulagsráð Reykjavíkurborgar þann 6. desember 2006 breytingu á deiliskipulagi fyrir Háagerði 1-79 og Sogaveg 98-106 vegna Háagerðis 43. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Breytingin öðlast þegar gildi. Breiðagerði 4. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög, samþykkti skipulagsráð Reykjavíkurborgar þann 6. desember 2006 breytingu á deiliskipulagi fyrir Teigagerðisreit vegna Breiðagerði 4. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Breytingin öðlast þegar gildi. Leiðrétting á auglýsingu sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda þann 20. nóvember síðastliðinn nr. 941/2006: Austurhöfn, tónlistarhús, ráðstefnumiðstöð og hótel. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög, samþykkti borgarráð Reykjavíkurborgar þann 18. maí 2006 deiliskipulag fyrir Austurhöfnina vegna tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels. Á fundi skipulagsráðs þann 15. nóvember 2006 var lögð fram og samþykkt lagfæring á greinargerð dags. í október 2006, vegna sama deiliskipulags. Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi. Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar 28. desember 2006. Birgir H. Sigurðsson sviðsstjóri.
|
B-deild - Útgáfud.:
2. janúar 2007
|