Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 80/2010

Nr. 80/2010 18. janúar 2010

GJALDSKRÁ
Grundarfjarðarhafnar.

I. KAFLI

Gildissvið.

1. gr.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir Grundarfjarðarhöfn og er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. I.

II. KAFLI

Um hafnagjöld.

2. gr.

Við ákvörðun hafnagjalda samkvæmt stærð skipa skal miða við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælibréfi, sem gefið er út eftir ákvæðum alþjóðasamþykktarinnar um mælingu skipa frá 1969.

3. gr.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs, ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar.

Lestargjöld.

4. gr.

Af öllum skipum skal greiða lestargjald 11,35 kr. á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði. Undanþegin eru varðskip og skip sem gerð eru út til vísindalegra rannsókna, einnig skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.

Bryggjugjöld.

5. gr.

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða 5,35 kr. á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið. Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald, 70,0 kr. á mælieiningu, en þó aldrei lægra en 9.000 kr. á mánuði. Bátar minni en 20 brt. greiði þó aldrei lægra en 5.100 kr. á mánuði.

Skip samkvæmt 2. mgr. 4. gr. eru undanþegin bryggjugjaldi.

Skip sem ekki eru í rekstri né leggja upp afla hjá Grundarfjarðarhöfn, skulu greiða fullt bryggjugjald fyrir hvern legudag og njóta ekki afsláttarkjara í formi mánaðargjalda. Skip telst ekki í rekstri ef það hefur legið lengur en einn mánuð í höfn.

Vörugjöld.

6. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

 

1.

flokkur: 240 kr. á tonn.

  

Bensín, brennsluolíur, kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

 

2.

flokkur: 440 kr. á tonn.

  

Lýsi og fiskimjöl.

 

3.

flokkur: 445 kr. á tonn.

  

a)

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda.

  

b)

Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.

   

Vélar og tæki hvers konar og varahlutir þeirra, svo sem heimilis- og skrifstofuvélar, bifreiðar, bifhjól, reiðhjól, hjólbarðar, bátar, flugvélar, hreyflar, mælitæki, húsbúnaður, vefnaðarvara og fatnaður. Útvarps- og sjónvarpstæki, hljóðfæri, úr, klukkur, myndavélar, sjónaukar, glys­varningur allskonar, vín, tóbak, sælgæti, snyrtivörur og lyf.

  

c)

Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt. Vörugjald greiðist ekki af bifreiðum ferðamanna, enda ferðast eigendur með sama skipi.

 

4.

flokkur: 1.235 kr. á tonn.

  

Vörur sem ekki verða flokkaðar annars staðar eftir þyngd.

 

5.

flokkur: 1,27%.

  

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brott­flutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum. Gjaldið reiknast af heildar­verðmæti aflans. Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis. Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd. Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðar­lega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskifélags Íslands. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.

Hámarksgjald samkvæmt 5. flokki 4.500 kr. fyrir hvert tonn.

Lágmarksgjald í öllum flokkum 160 kr.

Farþegagjöld.

7. gr.

Fyrir hvern farþega 40 kr.

Siglingavernd (ISPS).

8. gr.

Öryggisgjald fyrir skip sem falla undir hafnarvernd

29.000

kr. á komu.

Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í dagvinnu

3.240

kr. á klst. (ef óskað er).

Öryggisgæsla fyrir öryggisvörð í yfirvinnu

5.830

kr. á klst. (ef óskað er).

Þjónustugjaldskrá.

Rafmagn.

9. gr.

Rafmagnsverð til skipa er skv. taxta rafveitna með 10% álagi.

Hafnsaga.

10. gr.

Hafnsögugjald

4,40

kr. á mælieiningu.

Leiðsögn til og frá höfn

4.400

kr. fyrir tímaeiningu.

Hafnsögusjóður, skip sem nota hafnsögumann

610

kr.

Leigugjöld fyrir gáma.

11. gr.

Leiga á gámasvæði 80 kr. hver fermetri á mánuði.

Hafnsögubátur.

12. gr.

Fyrir hverja byrjaða klst. 15.000 kr. fyrir flutning á lóðs (hafnsögumanni) í skip.

Vatnsgjöld.

13. gr.

Vatn fyrir báta undir 20 brt.

1.554

kr. á mánuði.

Vatn fyrir báta 20-200 brt.

3.100

kr. á mánuði.

Vatn fyrir báta yfir 200 brt.

6.200

kr. á mánuði.

Gjald pr. selt tonn af vatni

200

kr. (lágmark 10 tonn).

Móttaka skipa.

14. gr.

Festargjöld fyrir hvern starfsmann 7.000 kr.

Greiða skal festargjald bæði við komu og brottför skipa. Þegar skip leggur að bryggju skal a.m.k. einn starfsmaður hafnarinnar taka á móti því. Heimilt er að veita undanþágu frá þessari reglu í sérstökum tilfellum.

Sorphirðugjöld.

15. gr.

Bátar að 20 brt. á mánaðargjaldi

1.770

kr. á mánuði.

Bátar 20-200 brt. á mánaðargjaldi

5.020

kr. á mánuði.

Bátar yfir 200 brt. á mánaðargjaldi

12.350

kr. á mánuði.

Fyrir hverja einstaka losun

5.500

kr. á mánuði.

Vogargjöld.

16. gr.

Almenn vigtun

125

kr. á tonn (sjávarafli).

Lágmarksgjald fyrir einstaka vigtun

730

kr.

Yfirvinna/útkall hafnarstarfsmanns

3.000

kr.

Viðlegugjöld.

17. gr.

Bátar undir 20 brt. 5.100 kr. á mánuði. Lestar- og bryggjugjald.
Frístundabátar og legubátar sem ekki skila aflagjaldi (1. september til 1. maí) 9.000 kr. pr. mán.
Mánaðargjald skipa 70 kr. á mælieiningu.
Lestargjöld 11,35 kr. á mælieiningu / mest 2x á mánuði.
Bryggjugjöld 5,35 kr. á mælieiningu.

Skráningargjald og önnur gjöld.

18. gr.

Skráning í „Lóðsinn“ á afla sem ekki kemur á hafnarvog

80

kr. tonnið.

Kranagjald, löndun með hafnarkrana

260

kr. á tonn.

Kranagjald, grásleppubátar fast

2.715

kr. á mánuði.

III. KAFLI

Um innheimtu og greiðslu hafnargjalda.

19. gr.

Hafnarstjóri sér um innheimtu allra hafnargjalda og skal greiða gjöldin á skrifstofu hafnarinnar. Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er heimilt að reikna hæstu lögleyfðu dráttarvexti á skuldina.

20. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til hafnarinnar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt að afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinunum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda skipagjaldsins. Að svo miklu leyti sem í gjaldskrá þessari eru ekki ákveðnir fastir gjalddagar á gjöldum skal greiða þau áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

21. gr.

Vörugjöld greiðir móttakandi af vörum sem koma til hafnarinnar og sendandi af vörum sem fluttar eru úr höfninni. Ef margir eiga vörur sem fluttar eru með sama skipi skal afgreiðslumaður skipsins standa hafnarsjóði skil á greiðslum. Ef skip hefur ekki farm sinn skráðan ber skipstjóri ábyrgð á greiðslu vörugjaldsins. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir. Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar á skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt. Hafnarsjóður hefur haldsrétt í skráningar- og þjóðernisskírteinum skips til tryggingar gjaldinu. Aflagjald og vörugjald af útflutningi skal auk þess tryggt með veði í útflutningsbirgðum þess aðila er skuldar gjöldin.

22. gr.

Á öll verð skv. verðskrá þessari, nema á farþegagjöld skv. 7. gr. og þjónustu við erlend skip, er lagður 25,5% virðisaukaskattur sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

23. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi. Skipagjöldin eru tryggð með lögveði í skipinu og gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum sbr. ákvæði 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003.

IV. KAFLI

Gildistaka.

24. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Grundarfjarðarhöfn er samþykkt af hafnarstjórn Grundarfjarðar­bæjar á 18. fundi 12. janúar 2010 skv. hafnalögum nr. 61/2003 með síðari breytingum og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi.

Grundarfirði, 18. janúar 2010.

Guðmundur Ingi Gunnlaugsson hafnarstjóri.


B-deild - Útgáfud.: 1. febrúar 2010

  Til baka