Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1172/2005
|
Samkvæmt skipulags- og byggingarlögum hefur sveitarstjórn Skorradalshrepps þann 12. október 2005 samþykkt deiliskipulag frístundabyggðar í Refsási (III. áfanga) í landi Hálsa, Skorradalshreppi. Deiliskipulagið er um 6 ha að stærð og gerir ráð fyrir 12 lóðum fyrir frístundahús (merkt 18-29) og er leyfilegt að reisa eitt frístundahús allt að 150 m² að grunnfleti á hverri lóð ásamt 15 m² geymslu. Greinargerð og uppdráttur hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi. Grund, 8. desember 2005. | F.h. sveitarstjórnar Skorradalshrepps, | Davíð Pétursson oddviti. |
|
B-deild - Útgáfud.:
30. desember 2005
|