1. gr. 3. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað orðanna „31. desember 2014“ í síðari málsl. 1. mgr. kemur: 31. desember 2015. 2. gr. 8. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Í stað orðanna „31. desember 2014“ í fyrri málslið greinarinnar kemur: 31. desember 2015. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast þegar gildi. Velferðarráðuneytinu, 10. nóvember 2014. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Sveinn Magnússon. |