Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
1046/2007
|
1. gr. Markmið. Markmið þessarar reglugerðar er að innleiða reglugerð framkvæmdastjórnarinnar um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu eins og nánar greinir í 2. gr., sbr. reglugerð um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um sameiginlegar reglur um almenningsflug og um stofnun Flugöryggisstofnunar Evrópu, nr. 612/2005. 2. gr. Innleiðing. Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 104/2004 frá 22. janúar 2004 um setningu reglna um skipulag og samsetningu kærunefndar Flugöryggisstofnunar Evrópu með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 15/2005 frá 8. febrúar 2008. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari. 3. gr. Gildistaka. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Samgönguráðuneytinu, 22. október 2007. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
13. nóvember 2007
|