1. gr. Gjald fyrir kúasæðingar er eftirfarandi: | kr. | Gjald á sædda kú í skýrsluhaldi | 1.600 | Gjald á sædda kú utan skýrsluhalds | 2.100 | Gjald á sædda kú þar sem ekki er mjólkurframleiðsla | 4.700 | Gjald fyrir sæði úr holdanauti | 1.350 | Heimsóknargjald vegna sæðinga | 950 |
2. gr. Sérhæfð ráðgjöf og þjónusta fyrir bændur á starfssvæði BV | kr. | 4.100 | pr. klst. | Almennur taxti, útseld vinna fyrir aðila sem ekki eru bændur á starfssvæði BV | kr. | 9.000 | pr. klst. | Almenn ráðgjöf fyrir bændur á starfssvæði BV | kr. | 0 | |
3. gr. Á sérhæfða ráðgjöf, vinnu og almennan taxta sem óskað er að fari fram utan hefðbundins vinnutíma, reiknast 50% álag. Reynist búrekstraráætlanir styrkhæfar samkvæmt búnaðarlagasamningi, verður styrkurinn viðskiptafærður á viðkomandi bónda og hið sama á við um styrki vegna afkvæmarannsókna í sauðfé. Heimsóknargjald innheimtist við hverja heimsókn sæðingamanns, óháð fjölda sæðinga, sama gildir hjá þeim sem ekki eru með mjólkurframleiðslu og við notkun á holdanautasæði. 4. gr. Virðisaukaskattur reiknast aukalega á hverja gjaldtöku, skv. 1., 2. og 3. gr. 5. gr. Gjaldskrá þessi er staðfest af ráðherra með heimild í 3. mgr. 3. gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 og tekur þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. janúar 2011. F. h. r. Kristinn Hugason. Arnór Snæbjörnsson. |