1. gr. Niður falla reglur nr. 826/2001 um Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands með síðari breytingum. 2. gr. Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt samkvæmt heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, taka þegar gildi. Háskóla Íslands, 15. júní 2010. Kristín Ingólfsdóttir. Þórður Kristinsson. |