1. gr. Í stað orðanna „lyfjanefndar ríkisins“ í 1. mgr. 6. gr., 7. gr., 8. gr. og 2. mgr. 13. gr. kemur: Lyfjastofnunar. 2. gr. Við 5. gr. bætist nýr töluliður sem verður 7. tölul. sem orðast svo: Malakítgrænt. 3. gr. 2. tölul. 7. gr. fellur brott. 4. gr. Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 12. gr., sbr. 49. gr., lyfjalaga nr. 93/1994, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Heilbrigðisráðuneytinu, 9. janúar 2008. Guðlaugur Þór Þórðarson. Berglind Ásgeirsdóttir. |