1. gr. Á eftir 1. málslið í 11. gr. kemur nýr málsliður sem orðist svo: Takmörkun getur náð eingöngu til leyfilegs ásþunga, leyfilegrar heildarþyngdar eða hvort tveggja, leyfilegs ásþunga og heildarþyngdar. Núverandi 2. málsliður verður ný málsgrein, 2. málsgrein 11. gr. 2. gr. Í stað VI. viðauka, þungatakmarkanir, komi nýr VI. viðauki sem hljóðar svo: Á vegum þar sem takmarka verður leyfðan ásþunga vegna aurbleytu eða af öðrum ástæðum við 2, 5, 7 eða 10 tonn gilda eftirfarandi reglur um mesta leyfðan ás- og heildarþunga: | | Burðarflokkar | | | | | | | | Ásar | 10 tonn | 7 tonn | 5 tonn | 2 tonn | Ás með tveimur hjólum | | 7 | 5*1) | 3 | 2 | Ás með fjórum hjólum | | 10 | 7 | 5 | 2 | Tvíás með fjórum hjólum Bil milli ása 1,3 - 1,8 | | 11 | 7 | 5 | 2 | Tvíás með sexhjólum Bil milli ása 1,3 - 1,8 | | 13,5 | 9 | 6,5 | 2 | Tvíás með átta hjólum Bil milli ása 1,3 - 1,8 | | 16 | 11 | 8 | 2 | Þríás með sex hjólum Bil milli ása 1,3-1,4 | | 16 | 11*2) | 8*2) | 2 | Þríás með tíu hjólum Bil milli ása 1,3-1,4 | | 20 | 13,5*2) | 10*2) | 2 | Þríás með tólf hjólum Bil milli ása 1,3-1,4 | | 22 | 15*2) | 11*2) | 2 | | | | | | | Takmörkun á heildarþunga samtengdra ökutækja eftir burðarflokkum þegar heildarþungi er einnig takmarkaður. | | | | |
*1) Lágmarkskrafa um hjólbarðastærð 1100 x 22,5. Fyrir minni hjólbarða er leyfður 4ra t ásþungi. Fyrir hjólbarðastærð 365/65R22,5 með 7,5 bör eða 109 psi loftþrýsting er leyfður 6 t ásþungi. *2) Lágmarkskrafa um hjólbarðastærð 1100 x 22,5. Fyrir minni hjólbarða reiknast þríás með sex hjólum sem tvíás með fjórum hjólum. Þríás með tólf hjólum reiknast sem tvíás með átta hjólum. *3) a) Heildarþungi 44 tonn fyrir sex ása vagnlest sé dráttarbifreið búin 2 sívirkum drifásum, hafi 4 hjól og loftfjaðrir á öllum ásum nema framás. b) Loftþrýstingur í hjólbarða sé takmarkaður að hámarki við 7 bör eða 102 psi í hjólbörðum framása (eða 7,5 bör eða 109psi sé framás með loftfjöðrun eða öðrum búnaði sem telst jafngildur eða með hjólbarðastærð að lágmarki 385/65R22,5) og 6 bör eða 87 psi í hjólbörðum afturása, mælt í köldum hjólbarða. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er skv. 75. og 76. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, öðlast þegar gildi. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 18. ágúst 2010. Kristján L. Möller. Ragnhildur Hjaltadóttir. |