þús. kr.
Ársreikningur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er gerður í samræmi við lög um fjárreiður ríkisins og gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.
Á árinu 2009 var tekjuhalli af rekstri Jöfnunarsjóðsins 223 m.kr. Samkvæmt efnahagsreikningi í árslok námu eignir alls 1.148 m.kr., skuldir 638 m.kr. og eigið fé 510 m.kr.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga staðfesta ársreikning Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2009 með áritun sinni.
Reykjavík, 11. október 2010.
Ögmundur Jónasson,
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Guðmundur Bjarnason,
formaður ráðgjafarnefndar.
Áritun endurskoðenda
Til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2009. Ársreikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnenda, rekstrarreikning, efnahagsreikning, yfirlit um sjóðstreymi, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Ábyrgð stjórnenda á ársreikningnum.
Stjórnendur eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga og fjárreiður ríkisins. Samkvæmt því ber þeim að skipuleggja, innleiða og viðhalda innra eftirliti sem varðar gerð og framsetningu ársreiknings þannig að hann sé í meginatriðum án verulegra annmarka. Ábyrgð stjórnenda nær einnig til þess að beitt sé viðeigandi reikningsskilaaðferðum og mati miðað við aðstæður.
Ábyrgð endurskoðenda.
Ábyrgð okkar felst í því áliti sem við látum í ljós á ársreikningnum á grundvelli endurskoðunarinnar. Endurskoðað var í samræmi við góða endurskoðunarvenju og ákvæði laga um Ríkisendurskoðun. Samkvæmt því ber okkur að fara eftir settum siðareglum og skipuleggja og haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka.
Endurskoðunin felur í sér aðgerðir til að staðfesta fjárhæðir og aðrar upplýsingar í ársreikningnum. Val endurskoðunaraðgerða byggir á faglegu mati endurskoðandans, meðal annars á þeirri áhættu að verulegir annmarkar séu á ársreikningnum. Endurskoðunin felur einnig í sér mat á þeim reikningsskila- og matsaðferðum sem gilda um A-hluta stofnanir og stjórnendur nota við gerð ársreikningsins og framsetningu hans í heild.
Við teljum að við endurskoðunina hafi verið aflað nægjanlegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Álit.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2009, efnahag 31. desember 2009 og breytingu á handbæru fé á árinu 2009, í samræmi við lög um ársreikninga og fjárreiður ríkisins.
Ríkisendurskoðun, 11. október 2010.
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi.
Sigurgeir Bóasson
endurskoðandi.