1. gr. Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 10 ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 37/2006, frá 10. mars 2006, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1910/2005 frá 8. nóvember 2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1725/2003 um innleiðingu tiltekinna, alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar IFRS-staðla 1 og 6, IAS-staðla 1, 16, 19, 24, 38 og 39 og túlkanir alþjóðlegu túlkunarnefndarinnar um reikningsskil 4 og 5. 2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnar (EB) nr. 1910/2005 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 45/2008, 18. júlí 2008, bls. 334. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 37/2006 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 28/2006, 1. júní 2006, bls. 23. 3. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla og öðlast þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 18. júlí 2008. F. h. r. Ingvi Már Pálsson. Þórður Reynisson. |