Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 555/2011

Nr. 555/2011 12. maí 2011
REGLUR
um Verkfræðistofnun Háskóla Íslands.

1. gr.

Almennt.

Verkfræðistofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknarstofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands. Stofnunin heyrir undir verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands og er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs í verkfræði og tölvunarfræði.

2. gr.

Hlutverk.

Hlutverk Verkfræðistofnunar er:

a)

að efla rannsóknir á fræðasviðum sínum við Háskóla Íslands,

b)

að efla tengsl rannsókna og kennslu og samhæfa rannsóknir í verkfræði og tölvunarfræði sem unnið er að við Háskóla Íslands,

c)

að styðja kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og veita nemendum í framhaldsnámi aðstöðu og búnað til rannsóknarstarfa eftir því sem kostur er,

d)

að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði verk­fræði og tölvunarfræði og sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf,

e)

að stuðla að þverfaglegu samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila,

f)

að sinna þjónustuverkefnum á sviði verkfræði og tölvunarfræði,

g)

að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í verkfræði og tölvunarfræði,

h)

að veita upplýsingar og ráðgjöf varðandi verkfræði og tölvunarfræði,

i)

að gangast fyrir námskeiðum, fyrirlestrum og ráðstefnum sem geta stuðlað að aukinni tækniþekkingu í landinu og þjálfun vísindalegra starfskrafta og rann­sóknar­manna.

3. gr.

Skipulag.

Verkfræðistofnun skiptist í þrjá rannsóknarkjarna: Umhverfis- og byggingar­verkfræði­kjarna, rafmagns- og tölvuverkfræðikjarna og iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðikjarna.

Að tillögu rannsóknarstjóra hvers kjarna er stjórn stofnunarinnar heimilt, með samþykki forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs, að skipta kjörnum í rannsóknarstofur. Skal þá liggja fyrir skilgreining á rannsóknarsviði og rannsóknarmarkmiðum hverrar rann­sóknar­stofu ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlun. Ekki skal setja á fót nýja rannsóknar­stofu nema sýnt þyki að rannsóknarumsvif haldist.

4. gr.

Aðild.

Aðild að hverjum rannsóknarkjarna eiga fastráðnir kennarar viðkomandi verkfræðideilda og þeir starfsmenn sem hafa lengri ráðningartíma en eitt ár. Þeir sem aðild eiga að hverjum rannsóknarkjarna eiga sæti á ársfundi kjarnanna. Fundirnir fara með stjórn hvers rannsóknarkjarna og skulu haldnir einu sinni á ári. Um ársfundi kjarnanna gilda annars hliðstæðar reglur og um deildarfundi. Skylt er að halda fund í kjarnanum ef a.m.k. þriðjungur aðila að kjarnanum óskar þess.

5. gr.

Rannsóknarstjórar og stofustjórar.

Fyrir hverjum rannsóknarkjarna skal vera rannsóknarstjóri, sem situr í stjórn Verkfræði­stofnunar, og skal fræðasvið hans vera innan rannsóknarkjarnans. Rannsóknar­stjórinn heyrir undir deildarforseta viðkomandi kjarna og ber jafnframt ábyrgð á rekstri síns rannsóknarkjarna gagnvart stjórn Verkfræðistofnunar.

Deildarforseti viðkomandi rannsóknarkjarna tilnefnir rannsóknarstjóra til þriggja ára í senn, úr hópi háskólamenntaðra starfsmanna rannsóknarkjarnans.

Rannsóknarstjóri annast daglegan rekstur kjarnans, þar með talið eftirlit með fjármálum hans og gerir fjárhagsáætlun. Hann getur skipað, með samþykki stjórnar, verkefnisstjóra yfir einstök rannsóknarverkefni. Verkefnisstjóri annast daglegan rekstur verkefnisins í umboði rannsóknarstjóra, þar með talið eftirlit með fjármálum.

Sé rannsóknarkjarna skipt í rannsóknarstofur skal stjórn stofnunarinnar skipa stofustjóra að fenginni tilnefningu stofufundar/deildar. Stofustjóri ber ábyrgð á rekstri stofu gagnvart rannsóknarstjóra og stjórn Verkfræðistofnunar.

6. gr.

Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað, eftir því sem kostur er. Stofnunin veitir starfsliði sínu aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rann­sókna eftir því sem þörf og kostur er á.

7. gr.

Stjórn.

Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs skipar fimm manna stjórn Verkfræðistofnunar til þriggja ára í senn, frá 1. júlí að telja. Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs skipar formann án tilnefningar. Auk þess skipa stjórnina rannsóknarstjórar og einn stjórnar­maður sem tilnefndur er af föstum starfsmönnum Verkfræðistofnunar. Stjórn Verkfræði­stofnunar skiptir að öðru leyti með sér verkum. Annað hvert ár skulu skipaðir, til skiptis, tveir aðalmenn eða þrír aðalmenn. Seta í stjórn er þó ekki takmörkuð við tvö ár.

Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Í þessu skyni skulu tilnefningaraðilar sbr. 1. mgr. tilnefna bæði karl og konu til setu í stjórn.

8. gr.

Stjórnarfundir.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með minnst þriggja daga fyrirvara.

Fundarboð skal greina frá dagskrá fundar. Á stjórnarfundum skal ræða fjárhagsáætlanir og fjárhagsstöðu einstakra verkefna og rannsóknarstofa. Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess eða ef forseti einnar verkfræðideildar eða fleiri forsetar bera fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum. Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formanns­störfum.

Halda skal rafræna gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send forsetum verkfræðideilda og forseta verkfræði- og nátt­úru­vísindasviðs.

Skrifstofustjóri situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar, sbr. 10. gr.

9. gr.

Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfsreglur. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofn­unar­innar.

Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum Verkfræðistofnunar gagnvart forseta verkfræði- og náttúruvísindasviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til forseta sviðsins um fjárveitingar og skiptingar þeirra ásamt skiptingu annarra tekna.

Stjórnin gerir tillögu að samþykktum um þjónusturannsóknir sem háskólaráð staðfestir.

Stjórnin efnir til ársfundar með starfsmönnum Verkfræðistofnunar og aðilum þar sem ársskýrsla og ársreikningar eru lögð fram. Auk þess ber að fjalla um önnur mál sem kveðið er á um í sameiginlegum reglum fyrir Háskóla Íslands.

10. gr.

Starfsmenn.

Heimilt er að ráða stofnuninni skrifstofustjóra. Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs ræður skrifstofustjóra að fenginni umsögn stjórnar stofnunarinnar. Forseti sviðsins setur skrifstofustjóra erindisbréf að fenginni tillögu stjórnar. Verði enginn skrifstofustjóri ráðinn gegnir formaður stjórnar störfum hans. Skrifstofustjóri annast daglegan rekstur stofnunarinnar og sér um framkvæmd á þeim málum sem stjórnin felur honum.

Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands. Forseti fræðasviðs setur nánari verklagsreglur um ráðningu starfsfólks.

11. gr.

Fjármál.

Tekjur Verkfræðistofnunar Háskóla Íslands eru eftirfarandi:

a)

framlag frá fræðasviði verkfræði- og náttúruvísindasviðs,

b)

styrkir til einstakra verkefna,

c)

greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,

d)

tekjur af útgáfustarfsemi,

e)

aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Fjárhagsáætlun skal kynnt og lögð fram á stjórnarfundi verkfræði- og náttúruvísindasviðs og samþykkt af forseta sviðsins.

Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starf­semi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnis­laga.

Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

12. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett að fenginni tillögu stjórnar verkfræði- og nátt­úruvísindasviðs og á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opin­bera háskóla, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 828/2001 um Verk­fræði­stofnun Háskóla Íslands.

Háskóla Íslands, 12. maí 2011.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 6. júní 2011