Með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Gljúfrastein, Mosfellsbæ. Friðunin nær til ytra byrðis hússins. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 25. júní 2010. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |