1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr.: Í stað „75/1981“ í 9. tölulið kemur: 90/2003. Orðin „og eignarskatt“ í 9. tölulið falla brott. Í stað „67“ og „75/1981“ í 15. tölulið kemur: 66 og 90/2003. Orðin „og eignarskatt“ í 15. tölulið falla brott. Við greinina bætist nýr töluliður er orðast svo: Styrkir sem greiddir eru samkvæmt lögum nr. 152/2006, um ættleiðingarstyrki. 2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr.: Í stað „75/1981“ kemur: 90/2003. Orðin „og eignarskatt“ falla brott. 3. gr. Í stað „75/1981“ í 2. mgr. 6. gr. kemur: 90/2003. 4. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr.: Í stað „75/1981“ kemur: 90/2003. Orðin „og eignarskatt“ falla brott. 5. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 8. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Ákvæði 5. mgr. 1. gr. öðlast gildi frá 1. janúar 2007. Fjármálaráðuneytinu, 12. janúar 2007. F. h. r. Baldur Guðlaugsson. Ingibjörg Helga Helgadóttir. |