Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 13/2015

Nr. 13/2015 13. janúar 2015
GJALDSKRÁ
Sjúkratrygginga Íslands fyrir hjúkrunarþjónustu öldrunarstofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015 og eru án samnings um verð við Sjúkratryggingar Íslands.

1. gr.

Gildissvið.

Gjaldskráin tekur til hjúkrunarþjónustu við sjúkratryggða heimilismenn hjúkrunarrýma á vegum öldrunarstofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015 og eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands um verðlagningu þjónustunnar. Í henni er kveðið á um þátttöku í kostnaði sjúkratryggðra í formi daggjalda fyrir hjúkrun til viðbótar daggjaldi samkvæmt reglugerð nr. 1185/2014 um daggjöld fyrir dvalarrými, dagdvalarrými og hjúkrunarrými sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015.

2. gr.

Heimilismenn hjúkrunarrýma.

Heimilismenn hjúkrunarrýma eru sjúkratryggðir einstaklingar sem færni- og heilsumats­nefnd hefur metið að séu í þörf fyrir dvöl í hjúkrunarrými samkvæmt reglugerð nr. 466/2012 um færni og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma. Sjúkratryggingar Íslands ákvarða hvort einstaklingur telst sjúkratryggður, sbr. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.

3. gr.

Daggjöld fyrir hjúkrun og fjöldi hjúkrunarrýma.

Daggjöld fyrir hjúkrunarþjónustu miðast við tilgreindan hámarksfjölda hjúkrunarrýma og skulu vera sem hér segir frá 1. janúar 2015:

Fjárlaga-liður (08-)

Viðf.

Heiti stofnunar

Hámarksfjöldi hjúkrunarrýma

Hjúkrunar- daggjald kr.

Nánari lýsing

401

113

Grenilundur, Grenivík

6

14.695

401

113

Hvammur, Húsavík

22

12.175

401

113

Blesastaðir, Skeiðum

4

12.157

401

113

Sólvellir, Eyrarbakka

3

12.633

401

113

Roðasalir, Kópavogi

11

11.206

401

113

Sæborg, Skagaströnd

6

12.475

401

113

Silfurtún, Búðardal

10

12.950

401

113

Hlévangur, Reykjanesbæ

32

14.197

401

113

Sundabúð, Vopnafirði

11

15.154

1)

401

113

Kirkjuhvoll, Hvolsvelli

17

20.308

2)

405

101

Hrafnista, Reykjavík

177

13.801

405

101

Hrafnista, Reykjavík, endurhæfing

20

20.492

3)

406

101

Hrafnista, Hafnarfirði

158

13.801

407

101

Grund, Reykjavík

181

13.203

408

101

Sunnuhlíð, Kópavogi

70

12.604

409

101

Hjúkrunarheimilið Skjól

107

13.651

410

101

Hjúkrunarheimilið Eir

161

13.651

410

101

Hjúkrunarheimilið Eir, endurhæfing

12

21.561

4)

412

101

Hjúkrunarheimilið Skógarbær

70

12.754

413

101

Droplaugarstaðir, Reykjavík

82

13.502

414

101

Hjúkrunarheimilið Lundur, Hellu

27

12.797

415

101

Hulduhlíð, Eskifirði

20

12.696

416

101

Hornbrekka, Ólafsfirði

18

13.419

417

101

Naust, Þórshöfn

10

11.813

418

101

Seljahlíð, Reykjavík

20

13.743

423

101

Höfði, Akranesi

50

12.715

424

101

Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi

32

12.937

425

101

Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi

13

13.426

426

101

Fellaskjól, Grundarfirði

9

12.475

427

101

Jaðar, Ólafsvík

10

12.633

428

101

Fellsendi, Búðardal

26

12.797

429

101

Barmahlíð, Reykhólum

14

13.268

433

101

Dalbær, Dalvík

24

13.242

434

101

Öldrunarstofnun Akureyrar

168

13.630

436

101

Uppsalir, Fáskrúðsfirði

14

12.330

437

101

Heilbrigðisstofnun Suðausturlands

22

12.641

438

101

Klausturhólar

16

13.426

439

101

Hjallatún, Vík

12

13.426

440

101

Kumbaravogur, Stokkseyri

34

12.641

441

101

Ás Ásbyrgi, Hveragerði

38

13.203

441

101

Ás Ásbyrgi, geðhjúkrunarrými

39

6.997

5)

442

101

Hraunbúðir, Vestmannaeyjum

29

11.879

445

101

Mörk, Reykjavík

93

13.732

445

101

Mörk, Reykjavík, sérrými

20

17.099

6)

446

101

Boðaþing, Kópavogi

44

14.158

448

101

Ísafold, Garðabæ

60

13.547

449

101

Hjúkrunarheimili, Mosfellsbær

30

15.598

450

101

Nesvellir, Reykjanesbæ

60

13.547

Nánari lýsing, sbr. töflu:

1)

Sundabúð, Vopnafirði er með eitt skilgreint endurhæfingarrými.

2)

Kirkjuhvoll, Hvolsvelli er með eitt hjúkrunarrýmanna skilgreint fyrir einstakling með fjölþættar skerðingar og er daggjald vegna hans ákvarðað sérstaklega og bundið við hann.

3)

Hrafnista, Reykjavík er með 20 skilgreind endurhæfingarrými.

4)

Hjúkrunarheimilið Eir er með 12 skilgreind endurhæfingarrými.

5)

Ás Ásbyrgi, Hveragerði er með 39 skilgreind geðhjúkrunarrými.

6)

Mörk, Reykjavík er með skilgreind sérrými, 10 geðhjúkrunarrými og 10 rými fyrir einstaklinga yngri en 67 ára.

Heimilt er að fækka hámarksfjölda hjúkrunarrýma sem greiðsluþátttaka sjúkratrygginga miðast við og skal þá tilkynna viðkomandi stofnun það með þriggja mánaða fyrirvara, miðað við mánaðamót.

Miðað er við að daggjöldin séu fyrirframgreidd mánaðarlega á grundvelli áætlaðrar nýtingar hjúkrunarrýmanna sem tilgreind eru í framangreindu yfirliti og að endanlegt uppgjör eigi sér stað eftir hvern almanaksmánuð. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er þó aldrei hærri en sem samsvarar 100% nýtingu tilgreindra rýma í uppgjörsmánuðinum og 98,6% nýtingu rýmanna á tólf mánaða tímabili.

Daggjald skal greitt þrátt fyrir að heimilismaður hverfi af stofnun í stuttan tíma, svo sem til aðstandenda yfir helgi eða hátíðar, enda hafi heilbrigðisyfirvöld ekki aukakostnað af dvöl­inni.

Fari heimilismaður á sjúkrahús til skammtímainnlagnar skal greiða 70% af daggjaldi stofn­unar í allt að 45 daga.

Við andlát heimilismanns eða þegar heimilismaður flytur fyrir fullt og allt af stofnun skal greiða fullt daggjald í allt að sjö daga. Ef heimilismaður í hvíldarrými andast skal greiða fullt daggjald í allt að tvo daga.

4. gr.

Hjúkrun í hjúkrunarrýmum.

Innifalin í daggjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari er hvers konar þjónusta sem heim­ilis­mönnum er látin í té á stofnunum umfram það sem kveðið er á um í reglugerð nr. 1185/2014 um daggjöld fyrir dvalarrými, dagdvalarrými og hjúkrunarrými sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015, sbr. meðal annars reglugerð nr. 427/2013, um greiðslur öldrunar­stofnana fyrir heilbrigðisþjónustu.

5. gr.

Greiðslur fyrir veitta þjónustu.

Um greiðslur fyrir veitta þjónustu og þátttöku heimilismanns í greiðslu dvalarkostnaðar fer samkvæmt 21., 22., 23. og 26. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breyt­ingum, og 6. mgr. 48. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breyt­ingum.

6. gr.

Gildistaka.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með stoð í 38. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, reglugerð nr. 1184/2014 um greiðslu kostnaðar vegna heil­brigðis­þjónustu í hjúkrunarrýmum öldrunarstofnana sem eru án samnings við Sjúkra­trygg­ingar Íslands, og reglugerð nr. 1185/2014 um daggjöld fyrir dvalarrými, dag­dvalar­rými og hjúkrunarrými sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2015. Gjaldskráin gildir frá 1. janúar 2015 til og með 31. maí 2015.

Sjúkratryggingum Íslands, 13. janúar 2015.

Steingrímur Ari Arason.

Katrín E. Hjörleifsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 13. janúar 2015