Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
562/2010
|
Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 15. apríl 2010 var samþykkt deiliskipulag Mjólkárvirkjunar sem er í landi Borgar í Borgarfirði í Arnarfirði, Ísafjarðarbæ. Skipulagssvæðið er rúmir 19 km² að stærð. Stærstur hluti þess liggur á Glámuhálendinu, en svæðið liggur að sjó í Borgarfirði. Allt svæðið er á svæði sem nýtur hverfisverndar skv. aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög mæla fyrir um. Skipulagið öðlast þegar gildi. Ísafirði, 5. júlí 2010. Jóhann B. Helgason, sviðsstjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs.
|
B-deild - Útgáfud.:
5. júlí 2010
|