I. KAFLI Um skipan bæjarstjórnar og verkefni hennar. 1. gr. Bæjarstjórn Kópavogsbæjar er skipuð 11 bæjarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. 2. gr. Starfstímabil bæjarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum. 3. gr. Bæjarstjórn Kópavogsbæjar fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga og annarra laga. Jafnframt fer bæjarstjórnin með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum sveitarfélagsins að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki falið öðrum slíka yfirstjórn. 4. gr. Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins í hvívetna og vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa. 5. gr. Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur bæjarstjórn ákveðið að Kópavogsbær taki að sér verkefni sem varðar íbúa hans sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum. 6. gr. Meðal verkefna bæjarstjórnar Kópavogsbæjar er: - Að kjósa forseta og varaforseta bæjarstjórnar, bæjarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla samþykktar þessarar, kjósa skoðunarmenn til að yfirfara ársreikninga bæjarins og ráða löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki, sem vinna skal endurskoðun hjá Kópavogsbæ.
- Að setja samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Að stjórna fjármálum bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
- Að ákveða stjórnkerfi bæjarins og ráða bæjarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá honum.
II. KAFLI Um fundarsköp bæjarstjórnar. 7. gr. Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í hverjum mánuði annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar nema júlí og ágúst, er halda skal aðeins einn fund og þá þriðja þriðjudag hvors mánaðar. Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi og einnig er heimilt að fella niður fund í desember. Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni. Falli reglulegur fundardagur á helgidag eða almennan frídag, skal boða til aukafundar þann virkan dag á undan eða eftir, sem næstur er. 8. gr. Aldursforseti bæjarstjórnar, þ.e. sá kjörinn fulltrúi í bæjarstjórninni sem á að baki lengsta setu í bæjarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag. 9. gr. Bæjarstjóri, sbr. þó 8. gr., boðar bæjarstjórnarfundi og ákveður jafnframt fundarstað hafi bæjarstjórn ekki gert það. 10. gr. Bæjarbúum skal kunngert með auglýsingu hvar og hvenær bæjarstjórnarfundir eru haldnir. Miðað skal við, að sem flestir bæjarbúar hafi greiðan aðgang að auglýsingunni. Í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvernig fundir hennar verði auglýstir og með hvaða fyrirvara. Skal sú ákvörðun kynnt bæjarbúum með tryggum hætti svo sem í dreifibréfi eða auglýsingu í staðbundnu fréttablaði. 11. gr. Bæjarstjóri semur dagskrá bæjarstjórnarfundar í samráði við forseta bæjarstjórnar og skal dagskráin fylgja fundarboði. Á dagskrá bæjarstjórnarfundar skal taka: - Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar forseta bæjarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarstjórnar, svo og kosningar eða ráðningu bæjarstjóra og annarra starfsmanna í helstu stjórnunarstöður hjá bænum.
- Fundargerðir bæjarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins sbr. 49. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Önnur mál sem falla undir verksvið bæjarstjórnar og bæjarstjóri og/eða forseti ákveður að taka á dagskrá eða einhver bæjarfulltrúi óskar að tekin verði á dagskrá. Bæjarfulltrúi, sem óskar að fá mál tekið á dagskrá bæjarstjórnar, skal tilkynna það bæjarstjóra skriflega með tillögu eða fyrirspurn a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund.
Dagskrá bæjarstjórnarfundar skulu fylgja afrit fundargerða, tillagna og annarra gagna, sem bæjarstjóri telur nauðsynleg til að bæjarfulltrúar geti undirbúið sig fyrir fundinn. Dagskrá skal jafnframt fylgja afrit fundargerðar síðasta bæjarstjórnarfundar. Dagskrá skal send út bréflega eða með rafrænum hætti. 12. gr. Bæjarstjóri skal hafa sent bæjarfulltrúum fundarboð bæjarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi tveimur sólarhringum fyrir bæjarstjórnarfund. 13. gr. Dagskrá bæjarstjórnarfundar skal vera aðgengileg bæjarbúum þegar hún hefur verið samin, svo sem á auglýsingatöflu eða vef bæjarfélagsins, skrifstofu þess á venjulegum afgreiðslutíma eða með öðrum hætti sem bæjarstjórn ákveður. 14. gr. Bæjarstjóri skal senda bæjarfulltrúum fundarboð aukafundar í bæjarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. sólarhring fyrir fund. 15. gr. Aldursforseti bæjarstjórnar sbr. 8. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar bæjarstjórnar og stýrir honum, uns forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn. Forseti bæjarstjórnar og varaforsetar skulu kjörnir til eins árs. Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný. Sá er rétt kjörinn forseti, sem fengið hefur atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í bæjarstjórn. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Hafi þrír eða fleiri bæjarfulltrúar fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn forseti sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti kosningu. Forseti stjórnar kjöri varaforseta bæjarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 3. mgr. Varaforsetar skulu kjörnir til jafnlangs tíma og forseti. Tilkynna skal kjör forseta og varaforseta til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins þegar að því loknu. Sé enginn forseta á fundi gegnir aldursforseti störfum forseta nema bæjarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra. Ef forseti deyr eða verður varanlega forfallaður frá störfum skal kjósa forseta í hans stað til loka kjörtímabils forseta. 16. gr. Bæjarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi bæjarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu kosnir hlutfallskosningu. Skrifarar skulu telja saman atkvæði við kosningar og þegar atkvæðagreiðslur fara fram í bæjarstjórn. Bæjarstjórn getur falið skrifurum og forseta að ganga frá og undirrita fundargerð hið fyrsta að loknum fundi. 17. gr. Bæjarstjórnarfund skal að jafnaði halda í heyranda hljóði og almenningi heimilaður aðgangur að þeim eftir því sem húsrúm leyfir. Heimilt er að útvarpa og/eða sjónvarpa frá bæjarstjórnarfundum. Bæjarstjórnarfundi skal halda í húsnæði sem fullnægir ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar um aðgang fatlaðs fólks. Bæjarstjórn getur ákveðið að einstök mál verði rædd fyrir luktum dyrum þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis málsins, svo sem viðkvæm einkamál manna eða viðskiptamál sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarins að rædd verði fyrir luktum dyrum. Jafnframt getur bæjarstjórn ákveðið að bæjarstjórnarfundur þar sem eingöngu er fjallað um slík mál verði haldinn fyrir luktum dyrum. Tillaga um að mál skuli rædd fyrir luktum dyrum skal afgreidd umræðulaust í bæjarstjórn. Óheimilt er að skýra frá því, sem fram kemur við umræður á lokuðum fundi í bæjarstjórn. 18. gr. Bæjarstjórnarfundur er lögmætur ef meira en helmingur bæjarfulltrúa er á fundi. Bæjarstjórn getur enga bindandi ályktun gert nema fundur sé lögmætur. 19. gr. Forseti bæjarstjórnar stýrir fundum hennar. Hann setur fund, kannar lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd. Jafnframt sér hann um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók bæjarstjórnar og að allar ályktanir og samþykktir séu rétt og nákvæmlega bókaðar. Forseti úrskurðar um skilning á fundarsköpum, en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarstjórnar. Forseti sér um að allt fari skipulega og löglega fram á bæjarstjórnarfundum og er bæjarfulltrúum skylt að lúta valdi hans að því er varðar fundarsköp og góða reglu. Raski áheyrandi fundarfriði getur forseti vísað honum úr fundarsal. Leyfi forseta þarf til að taka myndir og hljóðrita umræður á bæjarstjórnarfundum. 20. gr. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í bæjarstjórn í þeirri röð sem þau eru á dagskrá nema forseti eða bæjarstjórn ákveði annað. Forseti getur heimilað bæjarfulltrúa að taka til máls utan dagskrár óski hann þess. Heimilt er að taka til meðferðar á bæjarstjórnarfundi mál, sem ekki hefur verið á dagskrá, ef 2/3 viðstaddra bæjarfulltrúa samþykkja slíkt afbrigði. 21. gr. Bæjarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni: - Fjárhagsáætlun bæjarins, stofnana hans og fyrirtækja.
- Ársreikninga bæjarins stofnana hans og fyrirtækja.
- Samþykktir, reglugerðir og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
- Áætlanir fyrir bæjarfélagið sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem þriggja ára áætlanir og skipulags- og framkvæmdaáætlanir.
- Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
22. gr. Bæjarfulltrúa er skylt að sækja alla bæjarstjórnarfundi nema lögmæt forföll hamli, svo sem önnur brýnni skyldustörf eða veikindi. Sé bæjarfulltrúi forfallaður um stundarsakir skal hann tilkynna eða láta tilkynna forföllin til bæjarstjóra sem boðar þá varamann hans á fund. Varamenn taka sæti í bæjarstjórn í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Þar sem bæjarstjórn hefur verið kjörin í bundinni hlutfallskosningu taka varamenn sæti í þeirri röð sem þeir eru kosnir þegar aðalmenn þess lista sem þeir eru kosnir af forfallast. Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálaflokkum eða samtökum geta aðalmenn listans komið sér saman um mismunandi röð varamanna eftir því hver aðalmanna hefur forfallast. Bæjarstjóri skal sitja fundi bæjarstjórnar með málfrelsi og tillögurétti en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í bæjarstjórn. Bæjarstjórn getur heimilað einstaklingi utan bæjarstjórnar að taka til máls á bæjarstjórnarfundi. 23. gr. Bæjarfulltrúa ber að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af. Bæjarfulltrúar eru ekki vanhæfir þegar verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum bæjarstjórnar eða ákveða þóknun fyrir slík störf. Bæjarfulltrúar sem jafnframt eru starfsmenn bæjarins og hafa sem slíkir átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir bæjarstjórnina eru alltaf vanhæfir þegar bæjarstjórnin fjallar um málið. Þetta á þó hvorki við um bæjarstjóra né þegar bæjarstjórnin fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga bæjarins. Bæjarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli bæjarstjórnar á því. Bæjarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Bæjarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver bæjarfulltrúa sé vanhæfur. Bæjarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt. Bæjarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal bæjarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess. 24. gr. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á bæjarstjórnarfundum. Bæjarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta. Að jafnaði skulu bæjarfulltrúar taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Víkja má frá þeirri reglu ef um er að ræða bæjarstjóra, framsögumann í máli eða bæjarfulltrúa sem óskar að gera stutta athugasemd eða koma leiðréttingu á framfæri. Hafi tveir eða fleiri bæjarfulltrúar kvatt sér hljóðs samtímis ákveður forseti í hvaða röð þeir skuli tala. Bæjarfulltrúi skal flytja mál sitt úr ræðustól nema forseti leyfi annað. 25. gr. Bæjarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta eða fundarins. Þegar til umræðu er fundargerð bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar skal bæjarfulltrúi taka fram hvaða lið/liði fundargerðarinnar hann óskar að ræða. Heimilt er forseta að gera hvern einstakan lið fundargerðar að sérstöku dagskrármáli. Að öðrum kosti telst fundargerð eitt dagskrármál. Bæjarfulltrúi má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó bæjarfulltrúa að taka oftar til máls til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta athugasemd um fundarstjórn forseta. Bæjarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður máls (talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Ekki má bæjarfulltrúi lesa upp prentað mál við umræður í bæjarstjórn nema með leyfi forseta. 26. gr. Beri bæjarfulltrúi aðra menn brigslum skal forseti víta hann. Forseti getur lagt til við bæjarstjórn að bæjarfulltrúi sem víttur hefur verið tvisvar á sama fundi verði sviptur málfrelsi á þeim fundi. Skal slík tillaga afgreidd umræðulaust. Hlýðnist bæjarfulltrúi ekki úrskurði forseta eða bæjarstjórnar eða ef óregla kemur upp á fundi skal forseti gera fundarhlé, fresta fundi eða slíta fundi ef nauðsyn krefur. 27. gr. Telji forseti umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers bæjarfulltrúa verði takmarkaður, umræðum verði lokið á tilteknum tíma eða umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver bæjarfulltrúi getur og borið fram slíkar tillögur. Bæjarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál svo að hún standi skemur en tvær klukkustundir ef einhver bæjarfulltrúi kveður sér hljóðs. Umræður um fjárhagsáætlun eru ekki háðar ákvæðum greinar þessarar. 28. gr. Bæjarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál, sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur skulu vera skriflegar ef forseti óskar. Forseti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar til afgreiðslu. 29. gr. Mál er afgreitt í bæjarstjórn með því að samþykkja það eða fella það, vísa því frá bæjarstjórn eða vísa því til afgreiðslu bæjarráðs, annarrar nefndar, ráðs eða stjórnar eða bæjarstjóra eða annars tilgreinds starfsmanns. Máli, sem bæjarstjórn ber að lögum að afgreiða, verður þó eigi vísað til afgreiðslu annarra. Bæjarstjórn er heimilt að fresta afgreiðslu máls, nema um sé að ræða mál, sem að lögum ber að afgreiða fyrir tiltekinn tíma. 30. gr. Atkvæðagreiðsla á bæjarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með handauppréttingu. Forseti biður þá bæjarfulltrúa sem samþykkja mál, að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar forseti mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir forseti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Ef mál er svo vaxið að forseti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það, skýrir hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði við það gerð. Forseti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber forseta að láta fara fram nafnakall ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri nafnaskrá bæjarfulltrúa í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða bæjarfulltrúi greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar bæjarfulltrúi þegar forseti les upp nafn hans, já eða nei eftir því hvort hann er með máli eða móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði, en slík afstaða telst þó þátttaka í atkvæðagreiðslu. Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef bæjarfulltrúi óskar og bæjarstjórn samþykkir. Kosningar í bæjarráð, nefndir, ráð og stjórnir skulu vera leynilegar og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. 31. gr. Á bæjarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það en við kosningar ræður hlutkesti. Kosningar sem fara fram í bæjarstjórn skulu vera hlutfallskosningar skv. d'Hondts reglu, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör. 32. gr. Bæjarstjórn getur ráðið sérstakan fundarritara utan bæjarstjórnar til að annast ritun fundargerða í gerðabók bæjarstjórnar. Í fundargerð skal getið hvar og hvenær fundur er haldinn og hverjir sitji fundinn. Skrá skal þau mál sem tekin eru fyrir, dagsetningu þeirra, aðila máls og meginefni og hvernig mál er afgreitt. Sé mál ekki afgreitt samhljóða skal greina í fundargerð hvernig atkvæði hafa skipst. Þegar lagðar eru fram fundargerðir nefnda nægir að skrá í fundargerð bæjarstjórnar um hvaða nefndir er að ræða, dagsetningu fundargerða og fjölda töluliða. Mál sem tekin eru fyrir á lokuðum fundi skal skrá sem trúnaðarmál. Í lok fundar skal fundargerð lesin upp og skulu allir viðstaddir fundarmenn undirrita hana nema bæjarstjórn ákveði annað. Bæjarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu. Verði það gert skal bóka í gerðabók bæjarstjórnar númer fundar, hvar og hvenær fundurinn er haldinn og að fundargerð sé færð í tölvu. Þá skal færa í gerðabók fundarslit og greina blaðsíðutal fundargerða. Viðstaddir bæjarfulltrúar skulu rita nöfn sín við slit fundar í gerðabók. Í lok fundarins skal tölvuskráð fundargerð prentuð út og hún undirrituð af fundarmönnum. Einnig skal forseti og a.m.k. einn fundarmanna setja upphafsstafi sína undir hverja blaðsíðu fundargerða sem blaðsíðusettar skulu í áframhaldandi töluröð. Undirritaðar tölvuskráðar fundargerðir skulu reglulega bundnar inn til varanlegrar varðveislu. Bæjarstjóri sem gera vill athugasemd við eitthvert atriði í fundargerð getur undirritað fundargerðina með fyrirvara um það atriði. Bæjarfulltrúi getur ákveðið að umræður á bæjarstjórnarfundum verði hljóðritaðar eða teknar upp með öðrum hætti. Verði það ákveðið skal bæjarstjórn setja um það nánari reglur. III. KAFLI Um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa. 33. gr. Bæjarfulltrúa er bæði rétt og skylt að sækja fundi bæjarstjórnar nema lögmæt forföll hamli. Aðal- og varamönnum í bæjarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum bæjarfélagsins. Hver bæjarfulltrúi er skyldur til að taka að sér þau störf, sem bæjarstjórn felur honum og varða verkefni bæjarstjórnarinnar, svo sem störf forseta. Þó getur sá sem verið hefur forseti eitt kjörtímabil eða lengur eða setið í bæjarráði eða annarri nefnd sama tímabil skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi. 34. gr. Bæjarfulltrúa ber að gegna bæjarfulltrúastörfum sínum af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna bæjarins en í störfum sínum er bæjarfulltrúi einungis bundinn af lögum, siðareglum kjörinna fulltrúa og sannfæringu sinni. 35. gr. Bæjarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum bæjarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í samþykkt þessari. Bæjarfulltrúa er ekki skylt að taka þátt í atkvæðagreiðslu um einstök mál. Þegar um er að ræða mál sem bæjarstjórn er að lögum skylt að afgreiða s.s. fjárhagsáætlun eða ársreikninga eða kjör fulltrúa í lögboðnar nefndir, getur forseti ákveðið að endurtaka atkvæðagreiðslu ef minna en helmingur bæjarfulltrúa tekur þátt í atkvæðagreiðslunni. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá mál skv. 4. og 5. gr. samþykktar þessarar tekið á dagskrá bæjarstjórnarfundar enda tilkynni hann það bæjarstjóra skriflega a.m.k. þremur sólarhringum fyrir fund. Óski bæjarfulltrúi eftir að bera fram fyrirspurn um málefni bæjarins skal hann leggja hana skriflega fyrir forseta bæjarstjórnar, formann bæjarráðs eða bæjarstjóra. Fyrirspurnin skal vera um skýrt afmörkuð atriði og sé við það miðað að hægt sé að svara henni í stuttu máli. Bæjarfulltrúi segir til um hvort hann óskar skriflegs eða munnlegs svars. Stutt greinargerð má fylgja fyrirspurn. Fyrirspurn skal leggja fram í bæjarráði og skal hún að jafnaði tekin á dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar á eftir. Ef um skriflegt svar er að ræða skal það sent bæjarfulltrúum minnst einum sólarhring fyrir bæjarstjórnarfund. 36. gr. Bæjarfulltrúi á aðgang að bókum og skjölum bæjarins og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum og fyrirtækjum hans á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna. 37. gr. Bæjarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd um afstöðu sína til þeirra mála sem til umræðu eru í bæjarstjórn. 38. gr. Bæjarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að bæjarfulltrúi lætur af þeim störfum. 39. gr. Nú telur bæjarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í bæjarstjórninni án óhæfilegs álags og getur bæjarstjórnin þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Missi fulltrúi í bæjarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr bæjarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Nú er bæjarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal bæjarstjórnin þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir. 40. gr. Bæjarfulltrúi skal fá hæfilega þóknun úr bæjarsjóði fyrir störf sín í bæjarstjórn. Takist bæjarfulltrúi á hendur ferð á vegum bæjarfélagsins samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferða- og dvalarkostnaðar. Bæjarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr. 41. gr. Haga skal fundum bæjarstjórnar þannig, að bæjarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega. Mánuðina september til maí skulu bæjarfulltrúar hafa fasta viðtalstíma fyrir bæjarbúa á bæjarskrifstofunni. Bæjarritari sér um nánari framkvæmd. 42. gr. Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur bæjarfulltrúa gilda einnig um varamenn, sem sitja bæjarstjórnarfundi. IV. KAFLI Nefndir, ráð og stjórnir. 43. gr. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir, samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar, bundnar hlutfallskosningar ef einhver bæjarfulltrúi óskar þess. Starfsmenn fyrirtækja og stofnana bæjarins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá. 44. gr. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa fimm bæjarfulltrúa í bæjarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð. Þeir bæjarfulltrúar og varafulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið. Kjörnum bæjarfulltrúum, sem ekki eiga sæti í bæjarráði, skal heimilt að sitja fundi bæjarráðs sem áheyrendur án málfrelsis og án tillöguréttar. Framboðslista eða flokki sem á fulltrúa í bæjarstjórn en ekki kjörinn fulltrúa í bæjarráði skal heimilt að skipa áheyrnarfulltrúa í ráðið með málfrelsi og tillögurétt. 45. gr. Bæjarráð skal að jafnaði halda fund einu sinni í viku og skal bæjarráð festa fundartíma ráðsins í upphafi kjörtímabils bæjarstjórnar. Aukafundi skal halda ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða a.m.k. tveir bæjarráðsmenn óska þess. 46. gr. Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðsins. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með skriflegu fundarboði ásamt dagskrá a.m.k. einum sólarhring fyrir fund. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund skal hann annað hvort tilkynna bæjarstjóra um forföll og boðar bæjarstjórinn varamann hans á fund eða sjálfur boða varamann í sinn stað. 47. gr. Á fyrsta fundi nýkjörins bæjarráðs skal kjósa formann og varaformann bæjarráðs. Kjósa má bæjarstjóra formann bæjarráðs. Formaður bæjarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum, sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar bæjarráðs. Heimilt er að taka mál til meðferðar í bæjarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver bæjarráðsmaður óskar þess. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Um ritun fundargerða bæjarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr. 48. gr. Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarins og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og bæjarfyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Þá sér bæjarráð um að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum bæjarstofnana lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um. Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur um afgreiðslu málsins í bæjarráði eða við bæjarstjóra. Verði ágreiningur um afgreiðslu mála í bæjarráði fer málið til afgreiðslu í bæjarstjórn og ber forseta að taka það þar til sérstakrar afgreiðslu. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka skv. fjárhagsáætlun, s.s. til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda. Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg. 49. gr. Skylt er starfsmönnum bæjarins að sitja fundi bæjarráðs ef þess er óskað. 50. gr. Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann, varaformann og ritara nefndar nema lög eða bæjarstjórn ákveði annað. Bæjarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema formaður hafi áður verið valinn af bæjarstjórn. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara. 51. gr. Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli. Þegar aðalmaður í nefnd forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr bæjarfélaginu, fellur frá eða forfallast á annan hátt varanlega tekur varamaður hans sæti nema bæjarstjórn ákveði að kjósa aðalmann að nýju. Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðsaðilar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. 52. gr. Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn bæjarins. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á fund til viðræðna um tiltekin mál. 53. gr. Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum bæjarfélagsins eftir því sem við á. 54. gr. Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum bæjarins fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum bæjarstjórnar. Bæjarstjórn getur falið nefnd fullnaðarafgreiðslu einstakra mála eða málaflokka nema slíkt vald sé að lögum sérstaklega falið bæjarstjórn til ákvörðunar. 55. gr. Nefndir, ráð og stjórnir bæjarfélagsins skulu halda gerðabækur. Kjörinn ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Nefnd getur þó ráðið sér sérstakan fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða bæjarstjórnar, sbr. 32. gr. samþykktar þessarar. 56. gr. Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna bæjarins skulu teknar á dagskrá bæjarráðs og/eða bæjarstjórnar og skal það gert svo fljótt sem unnt er að afloknum nefndarfundi. Ef fundargerðir innihalda ekki ályktanir eða tillögur sem þarfnast sérstakrar staðfestingar bæjarráðs og/eða bæjarstjórnar eru fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar bæjarráðs og/eða bæjarstjórnar ber að taka þær sérstaklega fyrir. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir bæjarráð og/eða bæjarstjórn. 57. gr. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar nefndir, ráð, stjórnir og embætti: A. Til eins árs á fundi í júní ár hvert: - Bæjarráð. Fimm bæjarfulltrúa sem aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 38. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Forseta og tvo varaforseta bæjarstjórnar skv. 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Tvo skrifara og tvo til vara úr hópi bæjarfulltrúa skv. 16. gr. samþykktar þessarar.
B. Til fjögurra ára. Á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: - Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins. Tvo aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 9. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008.
- Búfjáreftirlitsmann. Einn og annan til vara skv. 9. gr. laga um búfjárhald, forðagæslu o.fl. nr. 46/1991.
- Atvinnu- og upplýsinganefnd. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara.
- Byggingarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
- Brunabótafélag Íslands Einn aðalmann í fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands og einn til vara skv. 9. gr. laga um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994.
- Ferlinefnd. Þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara.
- Félagsmálaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Félagsmálaráð annast störf þau sem barnaverndarnefnd eru falin samkvæmt lögum nr. 80/2002. Jafnframt fer félagsmálaráð með rekstur og stjórn gæsluvalla og daggæslu.
- Hafnarstjórn. Fimm menn og fimm til vara skv. 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003.
- Heilbrigðisnefnd. Tvo menn og tvo til vara skv. 11. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
- Húsnæðisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
- Íþrótta- og tómstundaráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. samþykkt bæjarstjórnar frá 14. október 1997.
- Jafnréttisnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 13. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008.
- Kjaranefnd. Tvo aðalmenn og jafnmarga til vara.
- Kjörstjórn við alþingiskosningar skv. 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000.
a) Þrjá menn í undirkjörstjórn og þrjá til vara. - Kjörstjórn við sveitarstjórnarkosningar. Þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998.
a) Hverfiskjörstjórn. Þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara. b) Undirkjörstjórn. Þrjá menn og jafnmarga til vara. - Leikskólanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. 9. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008.
- Lista- og menningarráð. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. samþykkt bæjarstjórnar frá 28. október 1986. Lista- og menningarráð fer jafnframt með stjórn bókasafnsins skv. 7. gr. laga um almenningsbókasöfn nr. 36/1997.
- Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. 6. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
- Skólanefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. 13. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og samningi Kópavogsbæjar og menntamálaráðuneytis um skólahald á framhaldsskólastigi í Kópavogi frá 14. maí 1982.
- Forvarnarnefnd. Fimm aðalmenn í forvarnarnefnd og fimm til vara.
- Þrjá menn í vinabæjanefnd og þrjá til vara skv. samþykkt bæjarstjórnar frá 12. nóvember 1983. Auk þess eiga sæti í nefndinni einn fulltrúi frá Norræna félaginu í Kópavogi og bæjarstjóri.
- Skoðunarmenn. Tveir aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
- Reykjanesfólkvangur. Einn aðalmann í nefnd um Reykjanesfólkvang og einn til vara.
- Stjórn Strætó bs. Einn aðalmann og einn til vara skv. 5. gr. stofnsamnings frá 7. maí 2001.
- Stjórn Héraðsskjalasafns. Þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara.
- Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Tvo bæjarfulltrúa eða varabæjarfulltrúa í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar og tvo til vara, sbr. 4. gr. samþykktar um starfsemi Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, sem staðfest var af fjármálaráðuneytinu 1. september 2009. Auk þess eiga sæti í stjórninni tveir fulltrúar kjörnir af sjóðsfélögum og bæjarstjóri, sem er formaður stjórnarinnar.
- Stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins. Einn aðalmann og einn til vara.
- Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Einn aðalmann og annan til vara.
- Stjórn Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins bs. Einn aðalmann og annan til vara skv. samþykkt bæjarstjórnar frá 12. janúar 1988.
- Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins bs. Tvo aðalmenn í fulltrúaráð og tvo til vara skv. 8. gr. stofnsamnings frá 15. febrúar 1988.
- Stjórn Tónlistarskóla Kópavogs. Einn aðalmann og einn til vara skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
- Stjórn Tónlistarhúss Kópavogsbæjar. Þrjá aðalmenn og þrjá til vara. skv. samþykkt bæjarstjórnar á stofnsamningi frá 3. júlí 1997.
- Stjórn Tónsala. Einn aðalmann og einn til vara skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985.
- Umhverfisráð. Fimm aðalmenn og jafnmarga til vara skv. samþykkt bæjarstjórnar frá 28. október 1986. Umhverfisráð annast verkefni þau sem gróðurverndarnefnd og náttúruverndarnefnd eru falin skv. lögum um landgræðslu nr. 17/1965 og 10. gr. laga um náttúruvernd nr. 44/1999.
- Umferðarnefnd. Fimm aðalmenn og fimm til vara skv. heimild í 2. mgr. 116. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Rétt til setu á fundum nefndarinnar hafa sýslumaður og bæjarverkfræðingur með málfrelsi og tillögurétt.
C. Í aðrar nefndir sem stofnaðar kunna að verða. 58. gr. Bæjarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður þegar kjörtími bæjarstjórnar er á enda nema um sé að ræða nefnd sem fengið hefur til úrlausnar ákveðið afmarkað verkefni. Þá skal litið svo á að starfi hennar ljúki fyrst er verkefnið er til lykta leitt. Bæjarstjórn getur þó afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er. V. KAFLI Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins. 59. gr. Bæjarstjórn ræður bæjarstjóra. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við bæjarstjóra þar sem m.a. skal kveðið á um ráðningartíma hans og kaup og kjör. Ráðningartími skal að jafnaði vera hinn sami og kjörtímabil bæjarstjórnar. Heimilt er þó að ráða bæjarstjóra um óákveðinn tíma en þá er ráðningarsamningur uppsegjanlegur af beggja hálfu með þriggja mánaða fyrirvara hvenær sem er. Ráðningarsamningur skal staðfestur af bæjarstjórn. 60. gr. Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda sbr. 9. gr. samþykktar þessarar. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum. Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað. Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarfélagsins, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki bæjarstjórnar þarf til. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarstjórnar að veita öðrum starfsmanni bæjarins prókúru. Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins. Í forföllum bæjarstjóra gegnir bæjarritari störfum hans nema þau séu sérstaklega öðrum falin. Forfallist bæjarstjóri um lengri tíma, skal bæjarráð setja mann til að gegna störfum hans en þó aldrei lengur en þrjá mánuði í senn. 61. gr. Bæjarstjórn ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá bæjarfélaginu svo sem yfirmenn sviða og forstöðumenn stofnana og fyrirtækja bæjarfélagsins og veitir þeim lausn frá störfum. 62. gr. Um ráðningu annarra starfsmanna fer eftir reglum sem bæjarstjórn setur. Um kaup og kjör fer eftir kjarasamningum viðkomandi stéttarfélaga. 63. gr. Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna bæjarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga. VI. KAFLI Um fjármálastjórn bæjarfélagsins. 64. gr. Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal bæjarstjórn afgreiða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, fyrirtækja og stofnana bæjarfélagsins fyrir yfirstandandi ár að undangengnum tveimur umræðum í bæjarstjórn. Ef ekki tekst að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir lok frestsins skal sækja skriflega um frest til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og tilgreina ástæður fyrir umsókninni. Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings og stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru skv. 4. mgr. 67. gr. sveitarstjórnarlaga. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar tekur bæjarstjórn ákvarðanir um nýtingu tekjustofna bæjarsjóðs og tekjuöflun, um öflun lánsfjár ef um það er að ræða og um ráðstöfun fjármuna á fjárhagsárinu bæði til rekstrar og eignabreytinga. Þá skal við gerð fjárhagsáætlunar hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs í byrjun fjárhagsársins. Bæjarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld bæjarfélagsins, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum þess. 65. gr. Fjárhagsáætlun skv. 64. gr. skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn bæjarfélagsins á fjárhagsárinu og ekki má stofna til útgjalda eða greiða fé úr bæjarsjóði nema heimild sé til þess í fjárhagsáætlun, útgjöldin séu lögbundin, samningsbundin eða samþykkt af bæjarstjórn. Samþykki bæjarstjórn fjárveitingu eða útgjöld utan fjárhagsáætlunar skal hún jafnframt taka ákvörðun um hvernig afla skuli fjár til þeirra útgjalda svo sem með lækkun annarra útgjalda, auknum tekjum eða lánsfé. Samþykki slíkrar fjárveitingar telst breyting á fjárhagsáætluninni. 66. gr. Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er bæjarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir bæjarstjórn við eina umræðu á bæjarstjórnarfundi enda hafi breytingartillögurnar verið sendar öllum fulltrúum í bæjarstjórn með dagskrá viðkomandi bæjarstjórnarfundar. 67. gr. Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal bæjarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarins. Þessi þriggja ára áætlun skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir bæjarins. Skal hún unnin og afgreidd af bæjarstjórn innan eins mánaðar frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar. 68. gr. Strax að lokinni afgreiðslu bæjarstjórnar skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu fjárhagsáætlun skv. 66. gr. og þriggja ára áætlun skv. 69. gr. Sama á við um endurskoðaða áætlun eða breytta skv. 68. gr. 69. gr. Ársreikningur bæjarins skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í bæjarstjórn fyrir lok aprílmánaðar. Bæjarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur endurskoðanda og skoðunarmanna. Bæjarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga bæjarsjóðs, stofnana bæjarins og fyrirtækja hans eigi síðar en 1. júní ár hvert. Bæjarfulltrúar og bæjarstjóri skulu árita ársreikninginn. Eintak af ársreikningnum skal senda samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Hagstofu Íslands fyrir 15. júní ár hvert ásamt greinargerð endurskoðanda og skoðunarmanna. Samþykkt þessi sem bæjarstjórn Kópavogsbæjar hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjastjórnar nr. 262/1990 með síðari breytingum. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 15. júní 2010. F. h. r. Hjördís Stefánsdóttir. Stefanía Traustadóttir.
|