1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 743/2013 frá 31. júlí 2013 um verndarráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi sem eru ætlaðar til manneldis. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 840/2014 frá 1. ágúst 2014 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 743/2013 um verndarráðstafanir varðandi innflutning á samlokum frá Tyrklandi, sem eru ætlaðar til manneldis, að því er varðar gildistíma hennar.
2. gr. Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa. 3. gr. Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995. 4. gr. Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli. 5. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum. 6. gr. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. september 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Ólafur Friðriksson. |
Eggert Ólafsson. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal) |