Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 953/2014

Nr. 953/2014 28. október 2014
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 243/2006, um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB, að því er varðar kröfur um upplýsingar um breytanleg og skiptanleg skuldabréf.

1. gr.

Reglugerð þessi er sett í samræmi við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2014, frá 27. júní 2014, um að bæta við IX. viðauka EES-samningsins og taka upp í innlendan rétt reglu­gerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 759/2013, um breytingu á reglu­gerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópu­þingsins og ráðsins 2003/71/EB, að því er varðar kröfur um upplýsingar um breytan­leg og skiptanleg skuldabréf.

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 759/2013, um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 809/2004 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB, að því er varðar kröfur um upplýsingar um breytanleg og skiptanleg skuldabréf. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28, frá 25. september 2014, bls. 477.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 759/2013 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 54. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 28. október 2014.

F. h. r.

Tómas Brynjólfsson.

Guðbjörg Eva H. Baldursdóttir.

B deild - Útgáfud.: 31. október 2014