1. gr. 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Húsfélög sem hafa kennitölu eiga rétt til endurgreiðslu vegna sameiginlegs kostnaðar við endurbætur og viðhald húseignar félagsaðila. 2. gr. Fyrirsögn III. kafla reglugerðarinnar verður: Um endurgreiðslu vegna verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa eða húseininga. 3. gr. 1. málsl. 9. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Rétt til endurgreiðslu samkvæmt ákvæðum þessa kafla eiga þeir sem framleiða hér á landi eða flytja inn verksmiðjuframleidd íbúðarhús eða húseiningar. 4. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar: - Í stað „4,65%“ í a lið 1. mgr. kemur: 7,75%.
- Í stað „5,25%“ í b lið 1. mgr. kemur: 8,75%.
- Í stað „3,75%“ í c lið 1. mgr. kemur: 6,25%.
- 3. mgr. orðast svo: Sé verksmiðjuframleitt hús eða húseining afhent óuppsett skal endurgreiðsla nema 5,45% af söluverði að meðtöldum virðisaukaskatti.
5. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar: - 1. málsl. orðast svo: Endurgreiðsla fyrir hvert endurgreiðslutímabil skal taka til þeirra verksmiðjuframleiddra húsa eða húseininga sem afhent eru á tímabilinu.
- Orðin „vegna sölunnar“ í 2. málsl. falla brott.
6. gr. 12. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Þeir sem eiga rétt á endurgreiðslu vegna verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa eða húseininga skulu eigi síðar en 15. dag næsta mánaðar eftir að endurgreiðslutímabili lýkur senda skattstjóra í því umdæmi þar sem þeir eiga lögheimili endurgreiðslubeiðni með greinargerð um fjölda afhentra íbúðarhúsa eða húseininga og verð. 7. gr. 1. málsl. 1. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Skattstjóri skal rannsaka endurgreiðslubeiðni og getur hann í því sambandi krafið aðila um framlagningu reikninga og annarra gagna, svo sem kaupsamning, lóðasamning og teikningar. 8. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 1. mgr. 42. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Fjármálaráðuneytinu, 8. maí 2009. F. h. r. Indriði H. Þorláksson. Ingvi Már Pálsson. |