Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 407/2012

Nr. 407/2012 2. maí 2012
AUGLÝSING
(IV) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Höfn, Hornafjörður.

a)

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan byggðarlagsins á tímabilinu frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 afla sem nemur, í þorskígildum talið, jöfnu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt skv. vigtunar- og ráðstöfunarskýrslum sem borist hafa Fiskistofu.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 2. maí 2012.

F. h. r.

Arndís Steinþórsdóttir.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 3. maí 2012