1. gr. Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi EB- og ESB-gerðir gildi hér á landi: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1291/2008 um samþykkt varnaráætlana vegna salmonellu í tilteknum þriðju löndum í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003, um skrá yfir eftirlitsáætlanir vegna fuglainflúensu í tilteknum þriðju löndum og um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 411/2009 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 215/2010 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottorða fyrir dýr og dýraafurðir. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 241/2010 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færslu Hvíta-Rússlands á skrána yfir þriðju lönd í þeirri reglugerð til að leyfa umflutning á eggjum og eggjaafurðum til manneldis frá Hvíta-Rússlandi gegnum Sambandið og um breytingu á vottun fyrir dagsgamla alifuglaunga, aðra en strútfugla. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 254/2010 um samþykkt á varnaráætlun vegna salmonellu í alifuglum í tilteknum þriðju löndum í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003 og um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar stöðu varna vegna salmonellu í tilteknum þriðju löndum. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 332/2010 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Ísrael í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 925/2010 um breytingu á ákvörðun 2007/777/EB og reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar umflutning gegnum Sambandið á alifuglakjöti og afurðum úr alifuglakjöti frá Rússlandi. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 955/2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar notkun á bóluefnum gegn Newcastle-veiki. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 364/2011 um breytingu á I. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1291/2008 að því er varðar varnaráætlun vegna salmonellu í tilteknum alifuglum og eggjum í Króatíu í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003 og um leiðréttingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 925/2010 og (ESB) nr. 955/2010. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 427/2011 um breytingu á I. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Ísrael í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 536/2011 um breytingu á II. viðauka við ákvörðun 2007/777/EB og I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færslur fyrir Suður-Afríku á lista yfir þriðju ríki og/eða svæði þess. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 999/2011 um breytingu á II. viðauka við ákvörðun 2007/777/EB og I. viðauka við reglugerð (EB) að því er varðar færslur fyrir Suður-Afríku á lista yfir þriðju riki vegna alvarlegrar fuglainflúensu. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1132/2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar umflutning á sendingum af eggjum og eggjaafurðum frá Hvíta-Rússlandi gegnum Litháen til rússneska yfirráðasvæðisins Kaliningrad. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1380/2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar sérstök skilyrði fyrir undaneldi og afurðir strútfugla. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 110/2012 um breytingu á II. viðauka við ákvörðun 2007/777/EB og I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færslurnar fyrir Suður-Afríku í skránum yfir þriðju lönd eða hluta þeirra. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 393/2012 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Taíland í skránum yfir þriðju lönd eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er innflutningur til Sambandsins og umflutningur um Sambandið á alifuglum og alifuglaafurðum. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 532/2012 um breytingu á II. viðauka við ákvörðun 2007/777/EB og I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færslur fyrir Ísrael í skránum yfir þriðju lönd eða hluta þeirra með tilliti til alvarlegrar fuglainflúensu. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1162/2012 um breytingu á ákvörðun 2007/777/EB og reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færslurnar fyrir Rússland í skránum yfir þriðju lönd þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknu kjöti, kjötafurðum og eggjum til Sambandsins. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 88/2013 um breytingu á ákvörðun 2007/777/EB og reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færslurnar fyrir Úkraínu í skránum yfir þriðju lönd þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknu kjöti, kjötafurðum, eggjum og eggjaafurðum til Sambandsins.
2. gr. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008, eins og henni er breytt með reglugerðum í töluliðum 2 - 20 í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa. 3. gr. Reglugerð þessi gildir með þeim takmörkunum sem leiðir af lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra og 10. gr. laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. 4. gr. Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008, um fiskeldi, lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. 5. gr. Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 54/1990, um innflutning dýra og laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. 6. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. apríl 2014. | F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, | Halldór Runólfsson. |
Eggert Ólafsson. Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal) |