Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1186/2007

Nr. 1186/2007 12. desember 2007
AUGLÝSING
(V) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 439, 16. maí 2007 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2006/2007 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Norðurþing.

Ákvæði reglugerðar nr. 439 frá 16. maí 2007 gilda með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  1. Úthlutun byggðakvóta hvers byggðarlags samkvæmt bréfi sjávarútvegsráðuneyt­isins dags. 21. maí 2007 skal skipt samkvæmt lönduðum afla innan sveitar­félagsins á tímabilinu 1. júlí 2006 til 30. júní 2007. Takmarkanir í reglugerð um 15 þorskígildistonna hámark og 100% aukningu eru felldar niður.
  2. Í stað 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þeirra aflaheimilda sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skil­yrði er uppfyllt.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt eru felldar úr gildi áður auglýstar reglur ofangreinds sveitarfélags um úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2006/2007, þ.e. í 4. tl. auglýsingar nr. 569 frá 26. júní 2007.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 12. desember 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Hinrik Greipsson.

B deild - Útgáfud.: 13. desember 2007