Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 590/2012

Nr. 590/2012 29. júní 2012

AUGLÝSING
um afgreiðslu bæjarstjórnar Kópavogsbæjar á tillögum að breyttu deiliskipulagi.

Rjúpnahæð - norðurhluti, Álmakór 7 og 9, breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkt þann 26. júní 2012 tillögu að breyttu deiliskipulagi við Álmakór 7 og 9.
Málsmeðferð var skv. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.

Rjúpnahæð - austurhluti, Aflakór 1-3, breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkt þann 26. júní 2012 tillögu að breyttu deiliskipulagi við Aflakór 1-3.
Málsmeðferð var skv. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.

Hnoðraholt, Þorrasalir 29, breytt deiliskipulag.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkt þann 26. júní 2012 tillögu að breyttu deiliskipulagi við Þorrasali 29.
Málsmeðferð var skv. 43. gr. ofangreindra laga.
Uppdrættir hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um.
Skipulagið öðlast þegar gildi.

Kópavogi, 29. júní 2012.

Smári Smárason,
umhverfissvið, skipulags- og byggingardeild.


B-deild - Útgáfud.: 9. júlí 2012

  Til baka